5
Annar maður, Ananías, og kona hans, Saffíra, seldu jörð. Hann afhenti postulunum hluta andvirðisins og sagði að það væri heildarsöluverðið.
„Ananías,“ sagði Pétur. „Satan hefur blekkt þig. Það er ósatt sem þú sagðir, að þetta væri allt söluverðið. Þú hefur logið að heilögum anda. Þér var í sjálfsvald sett hvort þú seldir eignina eða ekki. Og þegar þú hafðir selt, var það þitt að ákveða hve mikið þú gæfir. Hvernig gat þér dottið í hug að fara svona að? Þú hefur logið að Guði, en ekki okkur.“
Þegar Ananías heyrði þetta, datt hann dauður niður! Fólk varð skelfingu lostið. Ungu mennirnir komu og bjuggu um hann, og fóru með hann til greftrunar.
Þrem stundum síðar kom kona Ananíasar inn, en hún vissi ekki hvað gerst hafði. Pétur gekk til hennar og spurði: „Er þetta allt sem þið fenguð fyrir landið sem þið selduð?“
„Já,“ svaraði hún, „þetta var verðið.“
Þá sagði Pétur: „Hvernig gat ykkur hjónunum dottið í hug að gera slíkt – prófa hvort heilagur andi kæmist að svikunum? Ungu mennirnir, sem jörðuðu manninn þinn, eru hérna rétt fyrir utan og þeir munu líka bera þig út.“
10 Pétur hafði vart sleppt orðinu er hún féll örend til jarðar!
Þegar ungu mennirnir komu inn og sáu að hún var líka dáin, báru þeir hana út og grófu við hlið manns hennar. 11 Þessi atburður vakti ótta meðal allra í söfnuðinum og annarra sem um hann fréttu.
12 Postularnir voru vanir að koma saman í þeim hluta musterisins sem kallast súlnagöng Salómons, og þar unnu þeir mörg athyglisverð kraftaverk meðal fólksins. 13 Aðrir áræddu ekki að vera þar með þeim og almennt var borin mikil virðing fyrir þeim. 14 Sífellt snerust fleiri til trúar á Drottin, mikill fjöldi karla og kvenna. 15 Sjúklingar voru bornir á börum og dýnum út á göturnar, í þeirri von að skugginn af Pétri félli á þá, þegar hann ætti leið hjá! 16 Mikill mannfjöldi kom frá úthverfum Jerúsalem og tók fólkið með sér sjúklinga og þá sem höfðu illa anda. Þeir læknuðust allir.
Postularnir handteknir á ný
17 Æðsti presturinn og ættingjar hans og vinir meðal saddúkeanna, brugðust við þessu af mikilli hörku. 18 Létu þeir handtaka postulana og setja þá í gæsluvarðhald.
19 Um nóttina kom engill Drottins, opnaði fangelsishliðin og leiddi þá út. Síðan sagði hann við þá: 20 „Farið upp í musterið og predikið boðskap lífsins!“
21 Þeir komu til musterisins um sólarupprás og fóru strax að predika. Seinna um morguninn kom æðsti presturinn, og fylgdarlið hans, til musterisins og lét hann kalla saman allt ráðið. Því næst sendi hann þjóna til fangelsisins, með boð um að postularnir skyldu leiddir fyrir ráðið. 22 Þegar þjónarnir komu til fangelsisins, gripu þeir í tómt – postularnir voru á bak og burt! Þeir sneru því aftur til ráðsins og sögðu: 23 „Fangelsisdyrnar voru læstar og verðirnir stóðu fyrir utan, en þegar við opnuðum hliðin, var enginn maður þar inni!“
24 Þegar lögreglustjórinn og æðstu prestarnir heyrðu þetta, vissu þeir ekki sitt rjúkandi ráð og veltu fyrir sér hvernig þetta myndi fara. 25 Rétt í því kom einhver með þær fréttir, að mennirnir, sem þeir hefðu sett í varðhald, væru að predika í musterinu.
26-27  Lögregluforinginn fór þegar í stað ásamt undirmönnum sínum og tók þá fasta, án ofbeldis því að þeir óttuðust að fólkið réðist á þá, ef þeir færu illa með postulana. Síðan leiddu þeir þá fram fyrir ráðið.
28 „Sögðum við ykkur ekki að hætta að tala um þennan Jesú?“ spurði æðsti presturinn hvasst. „Nú hafið þið fyllt Jerúsalem með boðskap ykkar og reynið í þokkabót að kenna okkur um dauða þessa manns!“
29 Þá svaraði Pétur og hinir postularnir: „Framar ber að hlýða Guði en mönnum. 30 Guð forfeðra okkar vakti Jesú upp frá dauðum, eftir að þið höfðuð líflátið hann með því að hengja hann á kross. 31 Fyrir mátt sinn, hóf Guð hann til þeirrar virðingar að vera bæði konungur og frelsari, svo að Ísraelsþjóðin gæti snúið baki við syndum sínum og fengið fyrirgefningu. 32 Um þetta vitnum við ásamt heilögum anda, sem Guð gefur öllum sem honum hlýða.“
33 Þegar hér var komið, voru meðlimir ráðsins orðnir viti sínu fjær af reiði og ákveðnir í að lífláta postulana. 34 En þá stóð upp Gamalíel, meðlimur ráðsins og farísei, sérfræðingur í lögum og vinsæll meðal fólksins. Hann bað um að þeir yrðu látnir fara út úr ráðinu meðan hann talaði.
35 Síðan ávarpaði hann ráðið og sagði:
„Ísraelsmenn, íhugið vandlega það sem þið ætlið að gera við þessa menn. 36 Fyrir nokkru taldi Þevdas sig mikinn mann. Um 400 menn sóru honum trúnaðareið, en skömmu síðar var hann drepinn og þá lognaðist allt út af.
37 Seinna, þegar manntalið var tekið, kom fram Júdas frá Galíleu. Hann safnaði að sér nokkrum lærisveinum, en síðan dó hann og fylgjendur hans tvístruðust.
38 Ég ráðlegg ykkur að láta þessa menn eiga sig. Ef boðskapur þeirra er eigin hugarsmíð, þá mun þetta fljótlega verða að engu. 39 En sé hann frá Guði, þá megnið þið ekki að stöðva þá, það væri að berjast gegn sjálfum Guði.“
40 Ráðið samþykkti þetta, kallaði postulana fyrir sig, lét húðstrýkja þá og bannaði þeim harðlega að tala í Jesú nafni. Síðan var þeim sleppt.
41 Postularnir yfirgáfu ráðið og lofuðu Guð fyrir að hann skyldi álíta þá verða þess að þola smán hans vegna. 42 Og þeir komu daglega saman í musterinu, höfðu Biblíulestra í heimahúsum og boðuðu að Jesús væri Kristur.