12
Um gjafir heilags anda
Vinir, nú langar mig að minnast á þá sérstöku hæfileika – náðargjafir – sem heilagur andi gefur hverju og einu ykkar, því að ég vil ekki að neinn misskilningur sé um þau efni. Þið munið að áður en þið urðuð kristin, eltust þið við hvern hjáguðinn á fætur öðrum og enginn þeirra gat sagt eitt einasta orð. Nú kynnist þið hins vegar fólki sem telur sig flytja boð frá anda Guðs. Hvernig getið þið þekkt hvort boðin eru frá heilögum anda eða fölsuð? Það getið þið á þessu: Enginn, sem bölvar Jesú eða lítilsvirðir hann, getur talað af innblæstri heilags anda og enginn getur sagt:
„Jesús er konungurinn, hann er Drottinn,“ og meint það, án hjálpar heilags anda.
Guð gefur okkur margvíslegar náðargjafir og þær eru allar komnar frá einum og sama andanum – heilögum anda. Hægt er að þjóna Guði á marga vegu. Guð starfar á ýmsan hátt í lífi okkar, en samt er það hinn eini sanni Guð, sem vinnur verkið. Heilagur andi opinberar kraft Guðs í hverjum og einum, með þeim hætti sem helst verður kirkju hans til eflingar.
Einum gefur andi Guðs hæfileika til að veita góð ráð – tala vísdómsorð. Öðrum er gefið að geta talað af þekkingu og það kemur frá sama anda. Öðrum gefur hann mikla trú og enn öðrum kraft til að lækna sjúka. 10 Sumum gefur hann hæfileika til að gera kraftaverk, öðrum að geta spáð og predikað af innblæstri. Aðrir fá hæfileika til að skynja hvort illir andar tali í gegnum þá um það sem þeir ekki vita. Enn aðrir geta talað tungumál, sem þeir hafa aldrei lært – talað tungum – og öðrum sem ekki kunna viðkomandi tungumál, er gefið að skilja hvað hinn segir. 11 Hinn sami heilagi andi gefur allar þessar gjafir og hann ákveður hvað hver og einn okkar skuli hljóta. 12 Margir líkamshlutar mynda saman einn líkama. Þannig er einnig með líkama Krists – kirkjuna. 13 Hvert og eitt okkar er hluti af líkama Krists. Sumir eru Gyðingar, aðrir Grikkir, sumir eru þrælar, aðrir frjálsir, en heilagur andi hefur í skírninni tengt okkur öll saman í líkama Krists og öll höfum við fengið hlutdeild í sama heilaga anda.
14 Líkaminn hefur marga líkamshluta, ekki aðeins einn. 15 Ef fóturinn segði: „Ég er ekki hönd, og mig varðar því ekkert um líkamann“ þá yrði hann samt ekki líkamanum óviðkomandi. 16 Og hvað fyndist þér ef þú heyrðir eyrað segja: „Ég tilheyri ekki þessum líkama, því að ég er aðeins eyra en ekki auga!“ Væri það þá laust við líkamann? 17 Ef líkaminn væri allur eitt auga, hvernig gæti hann þá heyrt? Eða væri hann aðeins eitt stórt eyra, gæti hann þá fundið lykt?
18 Nei, þannig skapaði Guð okkur ekki. Hann skapaði okkur með marga líkamshluta og hver hluti er á réttum stað. 19 Það væri furðulegur líkami, sem væri aðeins einn limur! 20 Guð gerði því marga líkamshluta – marga limi – sem saman mynda einn líkama. 21 Augað getur aldrei sagt við höndina: „Ég þarf ekkert á þér að halda!“ Og höfuðið getur ekki sagt við fótinn: „Ég hef enga þörf fyrir þig!“
22 Sumir þeir líkamshlutar sem virðast veikbyggðastir, eru jafnvel nauðsynlegastir. 23 Já, við erum ánægð yfir að hafa vissa hluta sem skrýtnir eru. Og þá sem við viljum ekki að aðrir sjái og sem við blygðumst okkar fyrir, hyljum við vandlega, 24 meðan þeir líkamshlutar, sem allir mega sjá, krefjast ekki slíkrar umhyggju. Guð kom því þannig fyrir að meiri umhyggja og virðing er sýnd þeim sem gætu virst minni háttar. 25 Þetta hefur það í för með sér að allir líkamshlutarnir eru ánægðir og bera sömu umhyggju hver fyrir öðrum og þeir bera fyrir sjálfum sér. 26 Ef einn limur þjáist, finna allir til með honum og veitist einhverjum sæmd, samgleðjast allir hinir.
27 Jæja, ég er að reyna að segja þetta: Þið eruð öll sameiginlega líkami Krists og hver um sig sérstakur og nauðsynlegur hluti hans.
28 Í kirkju sinni, sem er líkami hans, hefur hann í fyrsta lagi postula, í öðru lagi spámenn – þá sem af innblæstri heilags anda flytja boðskap frá Guði – og í þriðja lagi kennara. Sumir gera kraftaverk, aðrir hafa hæfileika til að lækna, enn aðrir helga sig líknarstörfum. Sumir hafa skipulagsgáfu, – eiga gott með að láta menn vinna saman, – og tala tungum – tala tungumál sem þeir hafa ekki lært. 29 Eru allir postular? Auðvitað ekki! Eru allir postular og spámenn? Nei. Eru allir kennarar? Gera allir kraftaverk? 30 Fást allir við lækningar? Vitaskuld ekki! Tala allir tungum? Útlista allir tungutal? 31 Nei, en keppist öll eftir því að eignast þá af þessum hæfileikum sem mikilvægastir eru.
Hið mikilvægasta af öllu
Leyfið mér nú að segja ykkur frá öðru sem er betra en allir þessir hæfileikar.