3
Afleiðing vanþroska
Kæru systkini, nú hef ég talað við ykkur eins og þið væruð enn ungbörn í trúnni eða eins og þeir sem ekki fylgja Drottni, heldur sínum eigin hvötum. Ég get ekki talað við ykkur eins og ég myndi tala við þroskaða menn, sem fylltir eru anda Guðs. Ég hef orðið að næra ykkur á mjólk en ekki á kjarngóðum mat, af því að hann hafið þið ekki þolað og þið verðið jafnvel enn að láta ykkur nægja mjólkina. Þið eruð enn eins og smábörn og látið stjórnast af hvötum ykkar eingöngu, en ekki vilja Guðs. Þið eruð ennþá börn, sem fara sínu fram. Það sýnir afbrýðisemi ykkar hvers í annars garð og það að þið skiptið ykkur í deiluhópa. Satt að segja látið þið eins og fólk sem alls ekki tilheyrir Drottni. Þarna eruð þið og rífist um hvort ég sé meiri en Apollós og kljúfið þar með söfnuðinn. Sýnir þetta ekki hve lítið þið hafið þroskast í Drottni?
Hver er ég, og hver er Apollós, að við skulum vera deiluefni ykkar? Við erum aðeins þjónar Guðs, hvor um sig með sína sérstöku hæfileika, og með hjálp okkar komust þið til trúar. Mitt verk var að sá fræinu, orði Guðs, í hjörtu ykkar og verk Apollóss var að vökva það en það var Guð, en ekki við, sem lét það vaxa. Þeir sem sá og þeir sem vökva skipta ekki máli, en Guð skiptir öllu máli því að hann gefur vöxtinn. Við Apollós vinnum saman að sama markmiði, þótt hvor okkar um sig muni hljóta laun í samræmi við erfiði sitt. Við erum samverkamenn Guðs. Þið eruð akur Guðs en ekki okkar. Þið eruð hús Guðs en ekki okkar.
10 Guð hefur af gæsku sinni kennt mér hvernig á að byggja. Ég lagði grunninn en Apollós byggði ofan á, og sá sem byggir ofan á verður að gæta vel að hvernig hann byggir. 11 Annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem þegar er lagður og er Jesús Kristur. 12 En margs konar efni er hægt að nota til að byggja ofan á þennan grunn. Sumir nota gull, silfur og dýra steina en aðrir nota tré, hey eða strá. 13 Þegar Kristur kemur að dæma heiminn, mun reyna á, hvers konar efni það er sem hver um sig hefur notað. Verk hvers og eins verður reynt í eldi, svo að allir geti séð hvort það stenst og hvort eitthvert gagn var að því. 14 Þá mun hver sá hljóta laun, sem stenst prófið, það er að segja sá sem hefur byggt ofan á grunninn úr réttu efni. 15 Brenni hins vegar það sem einhver hefur reist, þá mun hann verða fyrir miklu tjóni. Sjálfur mun hann þó frelsast eins og sá sem bjargast úr eldi.
16 Skiljið þið ekki að þið eruð öll hús Guðs og andi Guðs býr með ykkur í því húsi? 17 Ef einhver óhreinkar eða spillir húsi Guðs, þá mun Guð eyða honum, því að hús Guðs er heilagt og hreint og slíkt hús eruð þið.
18 Hættið að blekkja sjálf ykkur! Ef þið teljið ykkur vel greind, eftir mati þessa heims, leggið þá allt slíkt sjálfsmat á hilluna og teljið ykkur vankunnandi, annars missið þið af hinni sönnu visku frá Guði. 19 Viska þessa heims er heimska í augum Guðs. Eins og Jobsbók segir þá notar Guð snilli mannsins til að veiða hann í gildru. Hann hrasar um sína eigin speki og dettur. 20 Og í Davíðssálmum er okkur sagt að Drottinn viti fullvel hvernig mannleg speki bregst við og hversu heimskuleg og fánýt þau viðbrögð séu.
21 Stærið ykkur ekki af visku einhverra spekinga. Guð hefur þegar gefið ykkur allt sem þið þurfið. 22 Hann hefur gefið ykkur Pál og Apollós til hjálpar. Hann hefur gefið ykkur allan heiminn til afnota. Einnig lífið og dauðinn eru ykkur til þjónustu. Hann hefur gefið ykkur allt hið liðna og alla framtíð. Allt tilheyrir ykkur 23 og þið tilheyrið Kristi, og Kristur er Guðs.