8
Matur sem fórnað er skurðgoðunum
Næst er það spurning ykkar um neyslu þess sem fórnað hefur verið skurðgoðum. Um þetta mál finnst öllum sitt svar vera hið eina rétta. En þótt við þykjumst hafa vit á öllu, þá er kærleikurinn nauðsynlegur til að efla kirkjuna.
Telji einhver sig vita svör við öllu, þá sýnir hann með því fáfræði sína. Sá einn, sem elskar Guð, er opinn og móttækilegur fyrir þekkingu frá Guði.
Nú, hvað um það? Ættum við að neyta kjöts sem fórnfært hefur verið skurðgoðum? Við vitum öll að skurðgoð er ekki raunverulegur Guð, það er aðeins einn Guð og enginn annar. Sumir segja að til séu fjölmargir guðir, bæði á himni og jörðu. En við vitum að Guð er aðeins einn, faðirinn, sem skapaði alla hluti, okkur líka, og einn Drottinn Jesús Kristur, sem allt var skapað fyrir og gefur okkur líf.
Samt gera sumir kristnir menn sér ekki grein fyrir þessu. Alla sína ævi hafa þeir vanist því að hugsa sér skurðgoð sem lifandi máttarvöld og trúað því að kjöti, sem fórnað er skurðgoðunum, sé raunverulega fórnað lifandi guðum. Þegar þeir svo neyta slíks kjöts, veldur það þeim áhyggjum og særir viðkvæma samvisku þeirra. Gleymið því ekki, að Guð lætur sig engu skipta hvort við borðum slíkt kjöt eða ekki, það gerir okkur hvorki gott né illt. En gætið þó að er þið notið frelsi ykkar og borðið þennan mat, að þið leiðið ekki afvega einhvern kristinn bróður, eða systur, sem hefur viðkvæmari samvisku en þið.
10 Sjáið nú til, þetta getur gerst: Einhver sem telur rangt að neyta fórnarkjöts, sér þig – sem veist að það er skaðlaust borða það, þá mun hann líkja eftir þér, þótt honum finnist það vera rangt. 11 Með þekkingu þinni (um að neysla þess sé skaðlaus) veldur þú viðkvæmum trúbróður miklum andlegum skaða, manni sem Kristur dó fyrir. 12 Það er synd gegn Kristi, að syndga gegn trúbróður með því að hvetja hann til einhvers sem honum finnst rangt. 13 Ef neysla kjöts, sem fórnað hefur verið skurðgoðum, leiðir trúbróður afvega, mun ég ekki neyta þess svo lengi sem ég lifi, til þess að ég valdi honum ekki slíku tjóni.