9
Ég veit reyndar að það er óþarfi að nefna við ykkur þessa aðstoð við söfnuði Guðs. Mér er ljóst að áhugi ykkar fyrir þeim er óskiptur. Ég hrósaði ykkur fyrir vinunum í Makedóníu og sagði að fyrir ári hefðuð þið verið reiðubúin að senda gjöf. Sannleikurinn er sá að það var áhugi ykkar, sem varð hinum hvatning til að veita aðstoð. Nú sendi ég þessa menn til þess eins að ganga úr skugga um að þið séuð reiðubúin, eins og ég sagði þeim að þið væruð, og hvort söfnunarféð lægi þegar fyrir. Ég vona að sú verði ekki reyndin, að í þetta sinn hafi ég tekið of djúpt í árinni með hrósyrðum mínum um ykkur. Mikið myndi ég blygðast mín – og þið reyndar líka – ef einhverjir þeirra frá Makedóníu yrðu mér samferða og sæju, að þegar allt kæmi til alls, þá væruð þið ekki tilbúin þrátt fyrir allt lofið sem ég hef borið á ykkur.
Gefið og þá mun ykkur gefið verða
Við töldum því nauðsynlegt að hvetja bræðurna til að fara á undan til ykkar og undirbúa þessa gjöf, sem þið höfðuð áður lofað, svo að hún gæti verið til taks þegar á þyrfti að halda. Ég vil svo gjarnan að hér sé um raunverulega gjöf að ræða, gjöf sem ekki hafi á sér nískublæ. Nú ætla ég að minna ykkur á eitt: Ef þið gefið lítið, þá fáið þið lítið. Bóndi sem sáir sparlega fær rýra uppskeru, en sái hann miklu, fær hann mikla uppskeru. Hver um sig verður að ákveða hve mikið hann gefur. Reynið ekki að þvinga neinn til að gefa meira en hann sjálfur vill. Guð elskar glaðan gjafara. Guð mun uppfylla þarfir ykkar með því að veita ykkur allt sem þið þurfið, og meira til, svo að þið hafið nóg fyrir ykkur sjálf og getið gefið öðrum með gleði. Um þetta segir Biblían: „Hinn guðrækni gefur fátækum með gleði. Góðverk hans munu verða honum til heiðurs í eilífðinni.“
10 Guð, sem gefur bóndanum útsæði og síðan góða uppskeru honum til framfæris, mun einnig gefa ykkur útsæði og margfalda uppskeru, svo að þið getið gefið æ meira. 11 Hann mun gefa ykkur mikið til þess að þið getið verið rausnarleg við aðra. Þegar við afhendum gjöf ykkar þeim sem hana eiga að fá, þá mun streyma fram lofgjörð og þökk til Guðs fyrir hjálp hans. 12 Þið sjáið að tvennt gott hlýst af gjöf ykkar. Í fyrsta lagi fá þeir sem þurfandi eru hjálp og í öðru lagi fyllast þeir þakklæti til Guðs. 13 Þeir sem fá aðstoð ykkar, gleðjast ekki aðeins vegna þessarar miklu gjafar, heldur munu þeir einnig lofa Guð, því að þetta mun sanna að verk ykkar eru í samræmi við orð ykkar. 14 Þeir munu einnig biðja fyrir ykkur og hugsa hlýtt til ykkar vegna þess hve Guð hefur verið ykkur góður.
15 Guði séu þakkir fyrir son sinn – þá gjöf sem engin orð fá lýst.