2
Ég vil gjarnan að þið vitið hve mikið ég hef barist í bæn fyrir ykkur og fyrir söfnuðinum í Laódíkeu. Einnig fyrir mörgum öðrum vinum mínum, sem aldrei hafa kynnst mér persónulega. Þetta er bæn mín fyrir ykkur: Að þið mættuð hljóta uppörvun, tengjast sterkum kærleiksböndum og eignast þá dýrmætu reynslu að kynnast Kristi náið og af eigin raun. Hann er sjálfur þetta leyndarmál Guðs, sem nú loks hefur verið kunngert. Í honum er að finna alla fjársjóði vísdóms og þekkingar.
Látið engan trufla trú ykkar
Þetta segi ég vegna þess að ég óttast að einhver reyni að blekkja ykkur með áróðri. Þótt ég nú sé fjarri ykkur, þá er ég hjá ykkur í anda, og gleðst yfir velgengni ykkar og staðfestu í trúnni á Krist. Nú skuluð þið, sem tókuð á móti Kristi, einnig treysta honum til að ráða fram úr vandamálum líðandi stundar og lifa í stöðugu samfélagi við hann. Verið staðföst í honum, eins og jurt sem skýtur rótum og sýgur til sín næringu. Gætið þess að halda áfram að vaxa í Drottni, svo að þið styrkist í sannleikanum. Látið líf ykkar geisla af gleði og þakklæti fyrir allt, sem hann hefur gert.
Látið engan villa um fyrir ykkur með heimspekilegum vangaveltum. Þessi heimskulegu svör þeirra eru byggð á hugmyndum og ályktunum manna, en ekki á orðum Krists. Í Kristi sjáum við Guð holdi klæddan og í honum einum er hina sönnu visku og þekkingu að finna. 10 Þegar þið lifið með Kristi, þá hafið þið allt sem þið þarfnist, því þá eruð þið í samfélagi við sjálfan Guð. Kristur er æðstur allra valdhafa og öll máttarverk eru honum undirgefin.
11 Þegar þið komuð til Krists, frelsaði hann ykkur frá hinum illu hvötum ykkar. Þetta gerði hann ekki með líkamlegum uppskurði eða umskurn, heldur með andlegum uppskurði – skírninni. 12 Í skírninni dó ykkar gamla, eigingjarna eðli og var grafið með honum. Síðan risuð þið upp frá dauðum ásamt honum og hófuð nýtt líf í trú á orð hins almáttuga Guðs, sem vakti Krist frá dauðum.
13 Þið voruð dáin í syndinni, en Guð gaf ykkur hlutdeild í lífi Krists, fyrirgaf ykkur syndirnar, 14 ógilti allar kröfur á hendur ykkar og strikaði yfir öll ykkar brot gegn boðorðunum. Hann tók þessa sakaskrá og eyðilagði hana með því að negla hana á kross Krists. 15 Á þennan hátt ógilti Guð þær ákærur, sem Satan bar fram gegn okkur vegna synda okkar, og kunngjörði öllum heiminum sigur Krists á krossinum, þar sem allar okkar syndir voru afmáðar.
16 Látið því engan ásaka ykkur fyrir það sem þið borðið eða drekkið, né fyrir að halda ekki gyðinglega hátíðis- og tyllidaga, tunglkomuhátíðir eða hvíldardaga Gyðinga. 17 Þetta voru aðeins tímabundnar reglur, sem féllu úr gildi þegar Kristur kom. Þær voru aðeins ímynd raunveruleikans – Krists. 18 Látið engan segja ykkur að þið glatist ef þið tilbiðjið ekki engla, eins og sumir halda fram. Þeir segjast hafa fengið vitrun um þetta og því beri ykkur að hlýða. Þetta veldur því einu að menn hrokast upp 19 og missa tengslin við Krist, höfuðið, sem við öll, líkami hans, tengjumst. Líkami Krists – söfnuðurinn – er tengdur saman og styrktur með taugum og sinum, og vex því aðeins að hann fái næringu og styrk frá Guði.
20 Þið dóuð með Kristi og þurfið því ekki að fylgja hugmyndum heimsins um hvernig eigi að frelsast. Vinna góðverk og fara eftir alls konar reglum. En hvers vegna haldið þið samt áfram að fylgja þessum hugmyndum og hvers vegna eruð þið ennþá bundin af reglum 21 sem banna ykkur að borða, smakka eða snerta vissan mat? 22 Slíkar reglur eru ekki annað en mannaboðorð, því að maturinn er ætlaður til neyslu. 23 Þessar reglur kunna að virðast góðar, því að þær krefjast mikillar sjálfsafneitunar, eru auðmýkjandi og valda líkamlegum óþægindum. En þær veita mönnum engan kraft til að sigrast á illum hugsunum og eigingjörnum hvötum, heldur auka aðeins á stolt þeirra.