4
Þrælaeigendur! Verið sanngjarnir og heiðarlegir við þræla ykkar. Munið að þið hafið sjálfir húsbónda á himnum sem fylgist vel með ykkur.
Þreytist ekki á að biðja en haldið því áfram uns þið fáið svar frá Guði og gleymið þá ekki að þakka honum. Gleymið ekki heldur að biðja fyrir okkur, að Guð gefi mörg tækifæri til að boða fagnaðarerindið um Krist, en þess vegna er ég í fangelsi. Biðjið þess að ég fái djörfung til að tala opinskátt, óhindrað og á einfaldan hátt, eins og mér ber að gera.
Umgangist viturlega þá sem ekki trúa og notið sérhvert tækifæri til að boða þeim fagnaðarerindið. Verið nærgætin en markviss í samtölum ykkar við fólk, svo að þið getið gefið því rétt svör við spurningum þess.
Kveðjur
Týkíkus, okkar heittelskaði bróðir, mun segja ykkur allt sem er að frétta af mér. Hann er duglegur samstarfsmaður í þjónustu Drottins. Það var ég sem sendi hann í þessa ferð, vegna þess að mig langaði að fá að vita hvernig ykkur liði og einnig að hugga ykkur og uppörva. Ég sendi einnig Onesímus, kæran og trúan bróður, en hann er einn af ykkur. Hann og Týkíkus munu segja ykkur allar nýjustu fréttir héðan.
10 Aristarkus er hér í fangelsinu ásamt mér. Hann sendir ykkur kæra kveðju og einnig Markús, en hann er ættingi Barnabasar. Eins og ég hef áður sagt, bið ég ykkur að taka sérlega vel á móti honum, ef hann kemur við hjá ykkur. 11 Júdas Jústus sendir einnig kæra kveðju. Þetta eru einu kristnu Gyðingarnir sem starfa hér með mér og þeir hafa sannarlega uppörvað mig.
12 Epafras, þjónn Jesú Krists – hann er frá Kólossu eins og þið – sendir ykkur kærar kveðjur. Hann biður Guð að styrkja ykkur og fullkomna og sýna ykkur vilja sinn í öllu. 13 Það segi ég satt, að hann hefur barist fyrir ykkur í bænum sínum og þeim í Laodíkeu og Híerapólis.
14 Lúkas, læknirinn kæri, sendir innilega kveðju og sömuleiðis Demas.
15 Viljið þið skila kveðju frá mér til kristnu vinanna í Laodíkeu og einnig til Nýmfu og þeirra sem koma saman á heimili hennar.
16 Þegar þið hafið lesið þetta bréf, þá sendið það til safnaðarins í Laodíkeu. Þið ættuð svo að lesa bréfið sem ég sendi þeim. 17 Segið við Arkippus: „Gættu þess að vinna vel það verk sem Drottinn hefur falið þér.“
18 Ég rita kveðju mína með eigin hendi. Minnist þess að ég er fangi. Blessun Guðs umvefji ykkur!
Páll