6
Þið börn, hlýðið foreldrum ykkar! Það skuluð þið gera, því að Guð hefur falið þeim að bera ábyrgð á ykkur. „Heiðra skaltu föður þinn og móður.“ Þetta er fyrsta boðorðið af hinum tíu boðorðum Guðs sem endar á loforði. Hvert er þá loforðið? Það er þetta: „Þá muntu lifa langa og blessunarríka ævi.“
Foreldrar, hér eru nokkur orð til ykkar. Venjið ykkur ekki á að skamma börn ykkar og jagast í þeim, því þá verða þau afundin og bitur. Alið þau heldur upp í kærleika og með aga, á sama hátt og Drottinn, og þá með ábendingum og góðum ráðum.
Þrælar, hlýðið húsbændum ykkar. Leitist við að sýna þeim allt hið besta. Þjónið þeim eins og þið væruð að þjóna Kristi. 6-7  Vinnið vel, ekki aðeins meðan yfirmaður ykkar fylgist með, til þess að svíkjast síðan um þegar hann snýr sér að öðru. Vinnið alltaf samviskusamlega og með gleði, eins og þið væruð að vinna fyrir Krist og þá gerið þið vilja Guðs. Munið að Drottinn mun launa ykkur allt sem þið hafið gert vel, hvort sem þið eruð þrælar eða frjálsir menn.
Þrælaeigendur! Komið vel fram við þræla ykkar, eins og ég sagði þeim að koma fram við ykkur. Hafið ekki í hótunum við þá og munið að þið eruð sjálfir þrælar Krists. Þið hafið sama yfirmann og þeir, og sá fer ekki í manngreinarálit.
Styrkur okkar er frá Guði
10 Að síðustu ætla ég að minna ykkur á að styrkur ykkar verður að koma frá Drottni og hans volduga mætti, sem er hið innra með ykkur. 11 Klæðist alvæpni Guðs, svo að þið getið staðist öll þau svik og blekkingar sem Satan beitir í árásum sínum gegn ykkur. 12 Barátta okkar er alls ekki gegn holdiklæddu fólki, heldur gegn ósýnilegum öflum eyðingar og upplausnar, hinum máttugu og illu myrkraöflum sem ríkja í þessum fallna heimi. Barátta okkar er einnig við mikinn fjölda illra anda í andaheiminum.
13 Notið öll þau vopn sem Guð hefur gefið okkur til að verjast árásum óvinarins, því að þá munuð þið standa sem sigurvegarar að átökunum loknum.
14 Ef þetta á að takast, þá þurfið þið belti sannleikans og réttlætisbrynju Guðs. 15 Verið skóuð fúsleik til að flytja öðrum gleðiboðskapinn um frið við Guð. 16 Beitið trú í hverri orrustu, því að hún er skjöldur sem getur stöðvað þær glóandi örvar sem Satan skýtur að ykkur. 17 Gleymið ekki hjálmi hjálpræðisins og sverði heilags anda, sem er Guðs orð.
18 Verið ávallt í bæn. Biðjið um allt það sem heilagur andi minnir ykkur á og látið hann leiða ykkur í bæninni. Minnið Guð á þarfir ykkar og biðjið stöðugt fyrir öllum kristnum mönnum, hvar sem þeir eru. 19 Biðjið einnig fyrir mér, að Guð gefi mér rétt orð og djörfung, þegar ég tala við aðra um Drottin og skýri fyrir þeim, að hjálpræði hans sé einnig ætlað heiðingjunum. 20 Nú er ég hér hlekkjaður fyrir að hafa boðað þetta. Biðjið að mér auðnist enn að boða það sama með djörfung, eins og mér ber hér í fangelsinu.
21 Týkíkus, heittelskaður bróðir og trúr aðstoðarmaður minn í verki Drottins, mun flytja ykkur fréttir af mér. 22 Ástæða þess að ég sendi hann til ykkar, er einmitt sú að láta ykkur vita hvernig okkur líður og að uppörva ykkur.
23 Kristnu vinir! Friður Guðs sé með ykkur, ásamt kærleika og trú frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi. 24 Náð og blessun Guðs sé með öllum sem í einlægni elska Drottin Jesú Krist.
Páll