2
Þið vitið vel, kæru vinir, að heimsókn okkar til ykkar var sannarlega ekki árangurslaus. Þið þekkið hve hart við vorum leiknir í Filippí, rétt áður en við komum til ykkar! Þrátt fyrir það gaf Guð okkur kjark til að flytja ykkur sama boðskap, meira að segja með djörfung, enda þótt við værum umkringdir óvinum. Af þessu getið þið séð að við predikuðum ekki á fölskum forsendum eða með illt í huga. Við vorum einlægir og komum til dyranna eins og við vorum klæddir.
Sendiboði Guðs
Við erum sendiboðar Guðs og þannig tölum við. Guð hefur treyst okkur fyrir sannleikanum og honum breytum við ekki til að þóknast mönnum. Við þjónum Guði einum. Hann rannsakar hjörtu okkar og þekkir okkar leyndustu hugsanir. Hvenær reyndum við að vinna traust ykkar með smjaðri? Aldrei, það vitið þið vel. Og Guð veit að ekki sóttumst við eftir vináttu ykkar til að græða á ykkur. Nei, það getum við talið okkur til lofs að aldrei höfum við beðið ykkur, né neinn annan, um peninga, enda þótt við sem postular Krists hefðum fullan rétt á að fara fram á fjárhagsstuðning eða viðurkenningu. Við sýndum ykkur eins mikla nærgætni og móðir barni sínu. Okkur þótti svo vænt um ykkur, að við gáfum ykkur ekki aðeins orð Guðs, heldur einnig líf okkar.
Kæru vinir, munið þið hvernig við strituðum meðan við vorum hjá ykkur? Við unnum dag og nótt til að hafa í okkur og á, svo að þið þyrftuð ekki að bera kostnað okkar vegna, meðan við fluttum ykkur fagnaðarerindið. 10 Þið getið sjálf borið vitni um það – ásamt Guði – að við höfum hreinan skjöld gagnvart ykkur öllum. 11 Við töluðum við ykkur eins og faðir við börn sín – munið þið það? Við áminntum, hvöttum og jafnvel grátbændum eitt og sérhvert ykkar, 12 svo að líferni ykkar yrði Guði ekki til skammar – honum sem kallaði ykkur inn í dýrðarríki sitt.
13 Við erum Guði eilíflega þakklátir, því að þið lituð ekki á boðskap okkar sem okkar eigin orð, heldur sem Guðs orð, sem það vissulega er. Þegar þið tókuð við því og trúðuð, þá breytti það lífi ykkar!
14 Síðan fenguð þið, kæru vinir, að reyna sömu þjáningar og kristnu söfnuðirnir í Júdeu. Þið þolduð ofsóknir af hendi samlanda ykkar, rétt eins og þeir í Júdeu meðal sinnar eigin þjóðar, Gyðinga. 15 Gyðingarnir líflétu sína eigin spámenn og síðan tóku þeir af lífi Drottin Jesú og nú hafa þeir ofsótt okkur hatrammlega og rekið okkur burt. Þeir rísa bæði gegn Guði og mönnum 16 og reyna að hindra okkur í að ná til heiðingjanna, af ótta við að einhverjir þeirra muni frelsast. Með þessu bæta þeir gráu ofan á svart og auka enn við syndir sínar. En reiði Guðs nær til þeirra að lokum.
17 Kæru vinir, það leið ekki langur tími frá því við fórum frá ykkur (hjörtu okkar yfirgáfu ykkur reyndar aldrei!), þar til við reyndum að snúa til ykkar á ný. 18 Okkur langaði mjög mikið til að hitta ykkur og ég, Páll, reyndi það hvað eftir annað, en Satan hindraði okkur. 19 Til hvers haldið þið að við lifum? Hvað haldið þið að sé von okkar, gleði og kóróna, – hrósunarefni okkar? Það eruð þið. Þið munuð verða gleði okkar þegar við stöndum hlið við hlið frammi fyrir Drottni Jesú Kristi, við endurkomu hans. 20 Þið eruð gleðiefni okkar og staðfesting á sigri okkar.