3
Kæru vinir, er ég nú lýk þessu bréfi, langar mig að biðja ykkur um eitt: Biðjið fyrir okkur! Biðjið fyrst að boðskapur Drottins fái að breiðast út og fara sigurför hvar sem hann heyrist, og að menn vinnist á sama hátt og gerðist meðal ykkar. Biðjið einnig um að við frelsumst úr klóm vondra manna, því ekki elska allir Drottin. Drottinn er trúfastur! Hann mun styrkja ykkur og vernda gegn öllum árásum Satans, hvers kyns sem þær eru.
Drottins vegna treystum við því að þið, bæði nú og framvegis, farið eftir því sem við kenndum og sögðum. Drottinn leiði ykkur til æ dýpri skilnings á kærleika Guðs og langlyndi Krists.
Mikilvæg áminning
Kæru vinir, hér er svo boðorð sem ég gef ykkur í nafni Drottins Jesú – í umboði hans og valdi: Forðist þá trúbræður ykkar sem, andstætt kenningu okkar, liggja í leti daginn út og inn og nenna ekki að vinna fyrir sér. Þið vitið að við gáfum ykkur gott fordæmi. Hvenær sáuð þið okkur slæpast? Aldrei. Við þáðum aldrei mat frá ykkur án þess að greiða fyrir, heldur unnum af kappi dag og nótt til að afla lífsviðurværis, svo að við yrðum engum ykkar byrði. Vissulega höfðum við rétt til að láta ykkur sjá fyrir okkur, en með þessu vildum við sýna hvernig þið eigið að vinna fyrir ykkur. 10 Við sögðum við ykkur: „Sá sem ekki vill vinna, á ekki heldur að fá mat.“
11 Engu að síður höfum við frétt að sumir ykkar séu óreglusamir, neiti að vinna, en séu þess í stað að skipta sér af því sem þeim kemur ekki við. 12 Við biðjum þá menn, í nafni Drottins Jesú Krists, að hætta öllu slóri, koma sér að verki og vinna fyrir sér! 13 Við ykkur hin, kæru vinir, segi ég: Þreytist aldrei á því að gera það sem gott er og rétt.
14 Neiti einhver að hlýða orðum okkar í þessu bréfi, þá fylgist með honum, en hafið ekki samband við hann, svo að hann sjái að sér. 15 Lítið ekki á hann sem óvin, heldur talið til hans sem bróður er fengið hefur aðvörun. 16 Guð friðarins gefi ykkur sinn frið! Drottinn sé með ykkur.
17 Hér er kveðja mín, rituð með eigin hendi, eins og í öllum mínum bréfum, og er það sönnun þess að bréfið sé frá mér. Þetta er mín eigin rithönd. 18 Blessun Drottins Jesú Krists sé yfir ykkur öllum.
Páll