10
Andstæður gamla og nýja sáttmálans
Hið gamla lagakerfi Gyðinga gaf aðeins óljósa hugmynd um allt hið góða, sem Kristur ætlaði að veita okkur. Fórnirnar, sem færðar voru samkvæmt þessu gamla lagakerfi, voru endurteknar sí og æ, ár eftir ár, en samt sem áður gátu þær ekki frelsað neinn sem lifði eftir lögunum. Ef svo hefði verið, þá hefði ein fórn verið nóg, menn hefðu hreinsast í eitt skipti fyrir öll og sektarkennd þeirra þar með verið fjarlægð. En það var öðru nær. Í stað þess að létta á samvisku manna, minnti þessi árlega fórn þá á óhlýðni þeirra og sekt. Það er útilokað að blóð nauta og geita geti hreinsað burt syndir nokkurs manns.
Þetta er ástæða þess, sem Kristur sagði þegar hann kom í heiminn: „Guð, þú lætur þér ekki nægja blóð nauta og geita, og því hefur þú gefið mér þennan líkama, til þess að ég leggi hann sem fórn á altari þitt. Þú gerðir þig ekki ánægðan með dýrafórnir – að dýrum væri slátrað og þau síðan brennd frammi fyrir þér sem syndafórn. Sjá, ég er kominn til að hlýða vilja þínum, til að fórna lífi mínu, eins og spádómar Biblíunnar sögðu fyrir um.“
Fyrst sagði Kristur að Guð gerði sér ekki að góðu hinar ýmsu fórnir og gjafir, sem krafist var samkvæmt lögmálinu. Síðan bætti hann við: „Hér er ég. Ég er kominn til að fórna lífi mínu.“
Þá afnam hann gamla kerfið og innleiddi þess í stað annað miklu betra. 10 Samkvæmt þessari nýju hjálpræðisleið fáum við fyrirgefningu og hreinsun í eitt skipti fyrir öll, vegna þess að Kristur dó fyrir okkur. 11 Samkvæmt gamla sáttmálanum stóðu prestarnir frammi fyrir altarinu dag eftir dag og báru fram fórnir, sem alls ekki gátu tekið burt syndir okkar. 12 Kristur fórnaði hins vegar sjálfum sér fyrir syndir okkar frammi fyrir Guði í eitt skipti fyrir öll. Að því loknu settist hann við hægri hönd Guðs, í æðsta heiðurssæti sem til er, 13 og bíður þess þar að óvinir hans verði lagðir að fótum hans. 14 Með þessari einu fórn fullkomnaði hann þá sem helga sig Guði.
15 Þetta staðfestir heilagur andi er hann segir: 16 „Þennan sáttmála vil ég gera við Ísraelsmenn, enda þótt þeir hafi rofið fyrri sáttmálann: „Lög mín vil ég grópa í hugskot þeirra svo að þeir þekki vilja minn. Ég mun rita lög mín í hjörtu þeirra, svo að þeir þrái að hlýða mér“.“ 17 Síðan bætir hann við: „Aldrei framar mun ég minnast synda þeirra né afbrota.“
18 Af því að syndirnar eru nú fyrirgefnar og gleymdar að eilífu, þá er fórnanna ekki lengur þörf. 19 Nú er svo komið, kæru vinir, að við getum gengið með djörfung inn í hið allra helgasta, þar sem Guð er, og er það dauða Jesú að þakka. 20 Þetta er hinn nýi og lifandi vegur, sem Kristur opnaði okkur þegar hann klauf í sundur fortjaldið – sinn jarðneska líkama – svo að við gætum gengið fram fyrir auglit heilags Guðs.
21 Fyrst þessi mikli æðsti prestur okkar hefur með höndum stjórnina á húsi Guðs, 22 þá skulum við ganga rakleitt fram fyrir Guð. Verum einlæg, með hreina samvisku og treystum því að hann taki á móti okkur, vegna þess að blóði Krists hefur verið „stökkt á okkur“ og líkamar okkar verið þvegnir hreinu vatni.
23 Nú getum við með öruggri vissu horft fram til þess sem Guð hefur heitið okkur. Ekki er lengur rúm fyrir efann. Nú getum við óhikað sagt að við eigum hjálpræðið, og það samkvæmt orði Guðs.
Einbeitið ykkur að því að gera hið góða
24 Gætum hvert að öðru og hvetjum hvert annað til að sýna hjálpsemi og að gera öðrum gott.
25 Vanrækjum ekki söfnuð okkar eins og sumir gera, heldur hvetjum og áminnum hvert annað, sérstaklega nú er endurkoma Jesú nálgast.
26 Ef við syndgum af ásettu ráði, eftir að hafa kynnst sannleikanum um fyrirgefningu Guðs, þá gagnar dauði Krists okkur ekki, og ekki er lengur um neina undankomuleið að ræða frá syndinni. 27 Þá tekur aðeins við hræðileg bið eftir dómi, því að reiði Guðs mun þurrka út alla óvini hans. 28 Hver sá, sem neitaði að hlýða lögum Móse, var skilyrðislaust tekinn af lífi, ef tvö eða þrjú vitni voru að synd hans. 29 Hugsið ykkur þá hve miklu þyngri refsingu sá hlýtur, sem fótum treður son Guðs og lítilsvirðir blóð hans – metur það vanheilagt – og hryggir þar með og smánar heilagan anda, sem boðar mönnunum miskunn Guðs.
30 Við þekkjum þann sem sagði: „Réttvísin er í mínum höndum og mitt er að refsa.“ Hann sagði einnig: „Drottinn mun sjálfur dæma í málum þessara manna.“ 31 Hræðilegt er að falla í hendur hins lifandi Guðs.
32 Gleymið ekki þeim dýrlega tíma er þið fyrst heyrðuð um Krist. Munið hversu fast þið hélduð ykkur að Drottni, þrátt fyrir erfiðleikana sem ykkur mættu, 33 og þótt hlegið væri að ykkur eða þið barin. Þið studduð aðra, sem urðu fyrir sama aðkasti, 34 og þjáðust með þeim sem varpað var í fangelsi. Og jafnvel þótt allt, sem þið ættuð, væri tekið frá ykkur, hélduð þið samt gleði ykkar, því að þið vissuð að á himnum ættuð þið í vændum það sem betra var, nokkuð sem enginn gæti nokkru sinni tekið frá ykkur.
35 Látið nú ekkert, hvað sem á dynur, ræna ykkur gleði ykkar og traustinu á Drottni. Minnist launanna, sem ykkar bíða. 36 Ef þið ætlist til að Guð standi við loforðin, sem hann hefur gefið ykkur, þá verðið þið einnig að sýna úthald og fara eftir hans vilja. 37 Endurkomu Drottins er ekki langt að bíða. 38 Þeir, sem öðlast hafa réttlæti Guðs fyrir trú, verða að lifa í trú og treysta honum í einu og öllu. Ef þeir hins vegar skjóta sér undan, þá eru þeir ekki Guði að skapi.
39 En við erum ekki menn sem snúa baki við Guði og hjálpræði hans. Nei, við erum menn trúarinnar og munum erfa hjálpræði hans.