8
Kristur ber fram fórn
Kjarni þess, sem við nú höfum sagt, er þetta: Kristur – en prestdómi hans vorum við rétt áðan að lýsa – er okkar æðsti prestur. Hann situr á himnum í hinu æðsta heiðurssæti við hlið Guðs. Prestsstörf sín vinnur hann í helgidómi himnanna, hinum sanna tilbeiðslustað, sem ekki er verk manna, heldur Drottins sjálfs.
Starf æðsta prestsins er fólgið í því að bera fram gjafir og fórnir, og fyrst svo er, verður Kristur einnig að bera fram fórn. Fórn hans er miklu betri en þær sem jarðneskir prestar bera fram. (Samt fengi hann ekki að vera prestur hér á jörðu, því að hér fara prestarnir enn eftir hinum gömlu reglum lögmálsins þegar þeir bera fram fórnir.) Þeir starfa við helgidóm sem er ekki annað en eftirlíking hins himneska helgidóms. Því að þegar Móse bjó sig undir að gera tjaldbúðina, þá áminnti Guð hann um að fara nákvæmlega eftir fyrirmynd himneska helgidómsins, sem honum var sýnd á Sínaífjalli. En Kristur, prestur himnanna, fékk að launum miklu mikilvægara starf en þeir sem þjóna samkvæmt gömlu lögunum. Nýi sáttmálinn, sem hann færði okkur frá Guði, hefur að geyma miklu stórkostlegri loforð en hinn gamli.
Gamli sáttmálinn reyndist einfaldlega ónothæfur. Ef hann hefði komið að gagni, hefði ekki þurft að koma annar nýr í hans stað. Það var sjálfur Guð sem kom auga á gallana í þeim gamla og því sagði hann: „Sá dagur mun koma er ég geri nýjan sáttmála við Ísraelsmenn og við Júdamenn. Nýi sáttmálinn verður ólíkur þeim gamla, sem ég gaf feðrum þeirra daginn sem ég leiddi þá burt úr Egyptalandi. Um gamla sáttmálann er það að segja, að þeir stóðu ekki við sinn hlut og því varð ég að nema hann úr gildi. 10 Nýi sáttmálinn, sem ég mun gera við Ísraelsmenn, hljóðar svo: Ég mun grópa lög mín í hugi þeirra, svo að þeir þekki vilja minn og viti hvað þeir eigi að gera, án þess að ég þurfi að segja þeim það. Ég mun rita þessi lög í hjörtu þeirra svo að þá langi til að hlýða þeim. Ég mun verða Guð þeirra og þeir munu verða mitt fólk. 11 Þá mun enginn þurfa að segja við vin sinn, nágranna eða bróður: „Þú ættir að kynnast Drottni“, því að þá munu allir þekkja mig, bæði stórir og smáir. 12 Ég mun sýna þeim miskunn og fyrirgefa þeim syndir þeirra.“
Gamli sáttmálinn
13 Guð segir um þessi nýju loforð og þennan nýja sáttmála að þau eigi eftir að taka sæti gamla sáttmálans, því að sá sé orðinn úreltur og hafi verið lagður til hliðar fyrir fullt og allt.