4
Elskið hvert annað
Elsku vinir, trúið ekki öllu sem þið heyrið, enda þótt menn segi að það sé boðskapur frá Guði. Sannprófið það fyrst. Margir falskennendur eru nú á ferð um heiminn. Til að vita hvort boðskapur þeirra sé frá heilögum anda, skulum við spyrja hvort Jesús Kristur, sonur Guðs, hafi orðið maður og komið í mannslíkama. Ef þeir viðurkenna það, þá er boðskapur þeirra frá Guði, ef ekki, þá er hann frá andstæðingi Krists – andkristinum – sem þið hafið heyrt að koma muni, og áhrifa hans gætir nú þegar í heiminum.
Kæru ungu vinir, þið tilheyrið Guði og hafið þegar unnið sigur á andstæðingum Krists, því að sá sem er í ykkur, er máttugri en allir falskennendur þessa óguðlega heims. Þeir eru af þessum heimi og hafa þess vegna allan hugann við það sem heimsins er, og heimurinn hefur áhuga á þeim. En við erum Guðs börn og þess vegna vilja þeir einir hlusta á okkur, sem hafa samfélag við Guð. Aðrir hafa ekki áhuga. Við höfum einnig aðra leið til að sannprófa hvort einhver boðskapur sé frá Guði: Ef hann er frá Guði, vill heimurinn ekki hlusta.
Kæru vinir, elskum hvert annað, því kærleikurinn er frá Guði. Þeir sem iðka kærleika og umhyggju, sýna að þeir eru börn Guðs og þekking þeirra á honum fer vaxandi. Sá sem ekki sýnir kærleika, þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur.
Guð hefur sýnt kærleika sinn með því að senda einkason sinn, í þennan hrjáða heim, til að deyja fyrir okkur og gefa okkur eilíft líf. 10 Kærleikurinn birtist ekki í því að við elskuðum Guð, heldur í því að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að afplána refsingu fyrir syndir okkar.
11 Kæru vinir, fyrst Guð hefur elskað okkur svo heitt, ber okkur einnig að elska hvert annað, 12 Enginn hefur nokkru sinni séð Guð eins og hann er í raun og veru, en samt lifir hann í okkur, það er að segja, þegar við elskum hvert annað og leyfum kærleika hans að vaxa í okkur. 13 Guð hefur einnig gefið okkur heilagan anda og það sýnir að við lifum í samfélagi við hann. 14 Við höfum séð með eigin augum og vitnum fyrir öllum heiminum, að Guð sendi son sinn til að verða frelsara allra manna. 15 Hver sá sem trúir og játar að Jesús sé sonur Guðs, á Guð í hjarta sínu og lifir í samfélagi við hann.
16 Við vitum að Guð elskar okkur – við höfum fundið kærleika hans! Við vitum það einnig vegna þess að við trúum orðum hans, að hann elski okkur. Guð er kærleikur og sá sem sýnir kærleika í verki, lifir í Guði og Guð í honum. 17 Ef við lifum í Kristi, vex kærleikur okkar og nær fullkomnun og þá verðum við okkur ekki til skammar eða háðungar á degi dómsins. Þá getum við glöð og hugrökk horfst í augu við hann, því að hann elskar okkur og við elskum hann.
18 Okkur er óþarft að óttast þann, sem elskar okkur, því að hans fullkomni kærleikur rekur burt allan ótta. Ef við erum hrædd, þá er það vegna þess að við höldum að Guð muni refsa okkur – við erum ekki fyllilega sannfærð um að hann elski okkur. 19 Af þessu má sjá að kærleikur okkar til hans er afleiðing af kærleika hans til okkar.
20 Ef einhver segir: „Ég elska Guð,“ og heldur áfram að hata bróður sinn, sem hann umgengst og sér, hvernig getur hann þá elskað Guð, sem hann hefur aldrei séð? 21 Boðorð Guðs er svona: „Sá, sem elskar Guð, á einnig að elska bróður sinn.“