4
Hvað veldur ósamkomulaginu?
Hvað veldur öllum þessum deilum og rifrildi á meðal ykkar? Eru það ekki hinar illu hvatir sem reyna að ná valdi yfir ykkur? Þið heimtið, en fáið samt ekki, þið drepið og öfundið – girnist eigur annarra, þið hafið ekki ráð á að eignast slíkt og beitið síðan ofbeldi til að ná því. Ástæða þess að þið fáið ekki það sem þið girnist, er einfaldlega sú að þið biðjið ekki Guð um það. En jafnvel þótt þið biðjið, þá fáið þið það ekki, því þið biðjið með röngu hugarfari, já, viljið njóta þessara hluta af eigingirni.
Þið líkist ótrúrri konu, sem elskar óvin manns síns. Skiljið þið ekki að vinátta við heiminn – illar nautnir þessa heims – er óvinátta við Guð. Ég endurtek: Ef markmið ykkar er að fá notið allra nautna þessa óguðlega heims, þá getið þið ekki samtímis verið vinir Guðs. Eða hvað haldið þið að Biblían eigi við þegar hún segir að heilagur andi, sem Guð hefur sent í hjörtu okkar, vaki yfir okkur og sé umhugað um velferð okkar? Heilagur andi styrkir okkur gegn öllum illum hvötum. Og Biblían segir líka: „Guð stendur gegn dramblátum, en blessar og hjálpar hinum auðmjúku.“
Beygið ykkur því undir vald Guðs. Standið gegn djöflinum og þá mun hann flýja ykkur. Nálgist Guð og þá mun hann nálgast ykkur. Þvoið hendur ykkar, syndarar, og gefið Guði einum rúm í hjörtum ykkar, svo að þau verði heil og hrein. Grátið yfir syndum ykkar og iðrist af öllu hjarta. Hláturinn snúist í hryggð og gleðin í dapurleik. 10 Þegar þið auðmýkið ykkur fyrir Drottni, mun hann upphefja ykkur, hughreysta og hjálpa.
11 Verið ekki aðfinnslusöm og talið ekki illa hvert um annað, vinir. Ef þið gerið það, brjótið þið boðorð Guðs að elska hvert annað. Þetta boðorð var okkur ekki gefið til að vega það og meta, heldur til að við hlýddum því. 12 Hann sem gaf þessa skipun, er sá eini, sem getur dæmt mál okkar mannanna með réttvísi. Hann einn ákveður hvort við frelsumst eða glötumst, og hvaða rétt hafið þið þá til að gagnrýna aðra og dæma?
13 Takið eftir, þið sem segið: „Í dag eða á morgun förum við til þessa eða hins bæjarins og þar ætlum við að dveljast í eitt ár og græða á viðskiptum.“ 14 Vitið þið nokkuð hvað morgundagurinn ber í skauti sínu? Líf ykkar er jafn hverfult og morgunþokan, sem sést um stund, en hverfur síðan. 15 Segið heldur: „Ef Drottinn vill, þá lifum við og gerum þetta eða hitt.“ 16 Nú stærið þið ykkur af eigin áformum og slíkt stærilæti er Guði á móti skapi. 17 Sá sem hefur vit á að gera hið góða, en gerir það samt ekki, drýgir synd.