3
Leynilegur gestur
Kvöld eitt, eftir að dimmt var orðið, kom einn af ráðherrum Gyðinga, farísei að nafni Nikódemus, til Jesú að ræða við hann. „Herra,“ sagði hann, „við vitum allir að Guð hefur sent þig til að fræða okkur, það sanna kraftaverk þín svo að ekki verður um villst.“
„Ég segi þér satt, Nikódemus,“ sagði Jesús, „ef þú endurfæðist ekki muntu aldrei komast inn í guðsríki.“
„Endurfæðist?“ spurði Nikódemus, „hvað er nú það? Hvernig getur gamall maður komist aftur inn í kvið móður sinnar og fæðst að nýju?“
„Það sem ég á við,“ svaraði Jesús, „er þetta: Ef maðurinn fæðist ekki af vatni og anda, getur hann ekki komist inn í guðsríki. Maður getur aðeins fætt af sér aðra mannveru, en heilagur andi gefur nýtt líf frá himnum. Vertu því ekki hissa þótt ég segi að þú verðir að fæðast að nýju! Þetta er eins og með vindinn. Þú heyrir í honum en veist samt ekki hvaðan hann kemur eða hvert hann fer. Þannig er það einnig með anda Guðs. Við vitum ekki hverjum hann gefur næst líf frá himni.“ „Þetta get ég ekki skilið!“ svaraði Nikódemus.
10-11  „Þú ert mikils metinn kennari hér í Jerúsalem en samt skilur þú þetta ekki!“ sagði Jesús. „Ég er að segja þér það sem ég veit og hef séð, en samt trúir þú mér ekki. 12 Ef þú trúir mér ekki þegar ég segi þér frá hlutum sem gerast meðal manna, hvernig geturðu þá trúað ef ég segi þér frá himneskum hlutum? 13 Ég, Kristur, er sá eini sem komið hefur niður til jarðarinnar og mun fara aftur til himins.
14 Móse reisti eirorminn upp á stöng í eyðimörkinni og þannig mun mér einnig verða lyft upp, 15 svo að allir sem á mig trúa, eignist eilíft líf. 16 Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf. 17 Guð sendi ekki son sinn til jarðarinnar til að dæma heiminn, heldur til að frelsa hann.
18 Sá sem trúir á hann verður ekki dæmdur. En sá sem ekki trúir, hefur sjálfur kallað yfir sig dóm og er þegar dæmdur fyrir að vilja ekki trúa syni Guðs.
19 Ástæður dómsins eru þessar: Ljósið frá himnum kom í heiminn, en mennirnir elskuðu myrkrið meir en ljósið, því verk þeirra voru vond. 20 Þeim var illa við þetta himneska ljós, því þá langaði til að syndga í myrkrinu. Þeir héldu sig í skugganum af ótta við að flett yrði ofan af syndum þeirra og þeim refsað. 21 En þeir sem í öllu leitast við að gera rétt, koma fúslega fram í ljósið, svo að allir geti séð að þeir geri Guðs vilja.“
22 Eftir þetta fór Jesús, ásamt lærisveinum sínum, frá Jerúsalem og dvöldust þeir um tíma í Júdeu og skírðu þar.
Jóhannes og Jesús
23-24  Þegar þetta var, hafði Jóhannesi skírara enn ekki verið varpað í fangelsi og var hann að skíra við Aínon, nálægt Salím, því þar var mikið vatn. 25 Dag einn fór einhver að deila við lærisveina Jóhannesar og sagði að betra væri að skírast hjá Jesú. 26 Þeir fóru því til Jóhannesar og sögðu: „Meistari, maðurinn sem þú hittir hinum megin við ána – sá sem þú sagðir að væri Kristur – hann skírir líka og allir fara til hans.“
27 „Enginn getur tekið neitt, nema Guð leyfi honum það,“ svaraði Jóhannes. 28 „Mitt hlutverk er að ryðja veginn fyrir Krist, svo að allir fari til hans. Þið vitið sjálfir að ég sagði ykkur að ég væri ekki Kristur. Ég er hér aðeins til að undirbúa komu hans – það er allt og sumt. 29 Fólkið fer auðvitað til hans sem hefur mesta aðdráttaraflið – brúðurin fer þangað sem brúðguminn er – og vinur brúðgumans samgleðst honum. Ég er vinur brúðgumans. Ég gleðst innilega yfir árangri hans. 30 Hann á að vaxa en ég að minnka.
31 Hann kom frá himni og er öllum æðri. Ég er af jörðu og skilningur minn bundinn hinu jarðneska. 32 Kristur segir frá því sem hann hefur séð og heyrt, samt trúa honum fáir. 33-34  En þeir sem það gera komast að raun um að Guð er uppspretta sannleikans. Því að Kristur er sendur af Guði og talar Guðs orð og andi Guðs starfar í honum, hindrunarlaust. 35 Faðirinn elskar þennan mann, því að hann er sonur hans og hann hefur gefið honum allt. 36 Allir sem treysta honum – Guðssyninum – eignast eilíft líf, en þeir sem hvorki trúa honum né hlýða, munu aldrei sjá guðsríki heldur mun reiði Guðs hvíla yfir þeim.“