Markús
1
Hér hefst hin einstæða frásaga af Jesú Kristi, syni Guðs. Í bók Jesaja spámanns stendur að Guð muni senda son sinn til jarðarinnar, en áður en hann komi, muni sérstakur sendiboði koma fram og búa heiminn undir komu hans.
Jesaja sagði: „Þessi sendiboði mun búa í óbyggðinni og predika að sérhver maður verði að bæta líferni sitt til að vera viðbúinn komu Drottins.“
Jóhannes skírari
Þessi sendiboði var Jóhannes skírari. Hann dvaldist í óbyggðinni og boðaði að allir skyldu skírast og láta þannig opinberlega í ljós ákvörðun um að þeir sneru baki við syndinni og tækju á móti fyrirgefningu Guðs. Fólk frá Jerúsalem og allri Júdeu fór út í Júdeueyðimörkina til að sjá Jóhannes og heyra, og þá sem játuðu syndir sínar skírði hann í ánni Jórdan. Hann var í fötum úr úlfaldahári, hafði leðurbelti um mittið og nærðist á engisprettum og villihunangi. Hér er dæmi um predikun hans: „Innan skamms mun sá koma sem mér er máttugri, já, svo miklu meiri að ég er ekki einu sinni verður þess að vera þjónn hans. Ég skíri ykkur með vatni en hann mun skíra ykkur með heilögum anda.“
Þá var það dag einn að Jesús kom frá Nasaret í Galíleu og Jóhannes skírði hann í Jórdan. 10 Um leið og Jesús steig upp úr vatninu, sá hann himnana opnast og heilagan anda koma yfir sig í dúfulíki. 11 Og rödd af himnum sagði: „Þú ert minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“
12-13  Strax að skírninni lokinni knúði heilagur andi Jesú út í eyðimörkina, og þar var hann einn í fjörutíu daga og Satan freistaði hans. Jesús hafðist þar við meðal eyðimerkurdýranna og englar þjónuðu honum.
14 Eftir að Heródes konungur hafði látið fangelsa Jóhannes fór Jesús til Galíleu og boðaði þar fagnaðarerindi Guðs.
15 „Stundin er komin,“ sagði hann. „Guðsríki er nálægt! Snúið ykkur frá syndinni og trúið gleðiboðskapnum.“
Jesús kallar til sín lærisveina
16 Dag einn er Jesús gekk fram með Galíleuvatninu sá hann bræðurna Símon og Andrés, þeir voru fiskimenn og voru einmitt þessa stundina að leggja netin.
17 Jesús kallaði til þeirra og sagði: „Komið og fylgið mér. Ég skal kenna ykkur að veiða menn!“ 18 Þá yfirgáfu þeir netin og fóru með honum.
19 Í öðrum bát, skammt frá, voru synir Sebedeusar, Jakob og Jóhannes, að bæta net sín. 20 Hann kallaði einnig á þá og þeir skildu Sebedeus og verkamennina eftir í bátnum og fóru á eftir honum. 21 Jesús og félagar hans komu nú til bæjarins Kapernaum og að morgni helgidagsins fóru þeir til samkomuhússins þar sem Gyðingar héldu guðsþjónustur sínar. Þar predikaði Jesús og 22 fólkið undraðist ræðu hans, því að hann talaði eins og sá sem hefur mikið vald en reyndi ekki að sanna mál sitt með sífelldum tilvitnunum í orð annarra eins og venja var.
Margir læknast
23 Við guðsþjónustuna var maður haldinn illum anda sem tók að hrópa og kalla: 24 „Jesús frá Nasaret, af hverju læturðu okkur ekki í friði? Ertu kannski kominn til að gera út af við okkur illu andana? Ég veit hver þú ert, þú ert hinn heilagi sonur Guðs!“
25 Jesús skipaði andanum að þegja og fara úr manninum. 26 Þá æpti illi andinn og hristi manninn ofsalega og fór síðan út af honum. 27 Fólkið varð forviða og spurði sín á milli: „Eru þetta ný trúarbrögð? Jafnvel illir andar hlýða honum!“ 28 Og fréttin af atburði þessum barst hratt um alla Galíleu.
29-30  Þegar Jesús og lærisveinar hans yfirgáfu samkomuhúsið fóru þeir heim til Símonar og Andrésar, þar sem tengdamóðir Símonar lá með mikinn hita. Þeir sögðu Jesú þegar frá henni. 31 Hann gekk að rúminu, tók um hönd hennar og hjálpaði henni að setjast upp og um leið fór hitinn úr henni. Hún klæddi sig og gaf þeim að borða.
32-33  Um kvöldið fylltist garðurinn við húsið af sjúklingum sem færðir höfðu verið til Jesú, ásamt öðrum sem haldnir voru illum öndum. Mikill fjöldi bæjarbúa stóð fyrir utan og fylgdist með. 34 Þetta kvöld læknaði Jesús mjög marga og rak illa anda út af mörgum. (Hann bannaði öndunum að tala, því þeir vissu hver hann var.)
35 Morguninn eftir var Jesús kominn á fætur löngu fyrir dögun og fór einn á óbyggðan stað til að biðjast fyrir.
36-37  Símon og hinir leituðu hann uppi og þegar þeir höfðu fundið hann sögðu þeir: „Allir eru að spyrja um þig.“
38 En hann svaraði: „Við verðum einnig að fara til hinna þorpanna og predika þar, því til þess er ég kominn.“
39 Og Jesús ferðaðist um alla Galíleu, predikaði í samkomuhúsunum og leysti marga undan valdi illu andanna. 40 Eitt sinn kom holdsveikur maður, kraup frammi fyrir honum og bað um lækningu. „Þú getur læknað mig ef þú vilt,“ sagði hann biðjandi. 41 Jesús fann til með honum, snerti hann og sagði: „Ég vil það! Læknist þú!“ 42 Samstundis hvarf holdsveikin og maðurinn varð heilbrigður.
43-44  Jesús sagði við hann, ákveðinni röddu: „Farðu nú til prestanna og láttu þá skoða þig. Hafðu hvergi viðdvöl og talaðu ekki við neinn á leiðinni. Taktu með fórnina, sem Móse fyrirskipar þeim, sem læknast af holdsveiki, og þá munu allir sjá að þú ert orðinn heilbrigður.“
45 En maðurinn sagði öllum sem hann mætti á leiðinni að hann væri heill og þar af leiðandi gat Jesús ekki komið opinberlega til neins bæjar án þess að forvitinn mannfjöldi þyrptist að honum. Hann varð því að hafast við úti í óbyggðinni og þangað streymdi fólkið til hans hvaðanæva að.