3
Meðan Jesús var í Kapernaum fór hann aftur í samkomuhúsið. Þar tók hann eftir manni með bæklaða hönd. Þetta var á helgidegi og því fylgdust óvinir Jesú nákvæmlega með honum. Skyldi hann lækna manninn? Ef svo færi, þá ætluðu þeir að kæra hann.
Jesús bað manninn að koma og standa frammi fyrir söfnuðinum. Síðan sneri hann sér að óvinum sínum og spurði: „Er leyfilegt að vinna gott verk á helgidegi? Eða er þessi dagur til illverka? Hvort má frekar bjarga lífi eða deyða?“ Jesús horfði reiðilega á þá, því honum blöskraði miskunnarleysi þeirra gagnvart mannlegri neyð. Síðan sagði hann við manninn: „Réttu fram hönd þína.“ Maðurinn gerði svo og um leið varð hönd hans heilbrigð! Farísearnir fóru þá til fundar við Heródesarsinnana, því þeir ætluðu í sameiningu að finna ráð til að taka Jesú af lífi. 7-8  Jesús fór þá ásamt lærisveinunum niður að vatninu. Gífurlegur fjöldi fylgdi honum úr allri Galíleu, Júdeu, Jerúsalem, Ídúmeu, frá landsvæðunum handan Jórdanárinnar og jafnvel alla leið frá Týrus og Sídon. Ástæðan var sú að fréttir af kraftaverkum hans höfðu borist víða og margir vildu sjá hann með eigin augum. Jesús sagði lærisveinunum að hafa smábát til taks handa sér, sem hann gæti farið út í er fólkið tæki að þrengja að honum. 10 Hann hafði læknað marga þennan dag og því dreif að fjölda sjúklinga, sem reyndi að snerta hann.
11 Þegar þeir sem haldnir voru illum anda, sáu hann, féllu þeir til jarðar við fætur hans og æptu: „Þú ert sonur Guðs.“ 12 Þá skipaði hann öndunum að segja engum hver hann væri.
Fleiri samverkamenn
13-15 Næsta dag fór Jesús upp í fjalllendið og boðaði þangað til sín vissa menn úr lærisveinahópnum. Þegar þeir voru komnir valdi hann tólf úr hópnum til að vera með sér, fara í predikunarferðir og reka út illa anda. 16-19 Þetta eru nöfn þeirra sem hann valdi: Símon (sem hann gaf nafnið Pétur), Jakob og Jóhannes (synir Sebedeusar, en þá kallaði Jesús „þrumusynina“), Andrés, Filippus, Bartólómeus, Matteus, Tómas, Jakob Alfeusson, Taddeus, Símon (Selóti – hann var í byltingarsinnuðum stjórnmálaflokki, sem aðhylltist byltingu gegn rómversku landstjórninni) og Júdas Ískaríot (sem síðar sveik hann).
20 Þegar Jesús kom aftur heim, tók fólkið að þyrpast að á ný og ekki leið á löngu uns gestirnir voru orðnir svo margir að hann hafði ekki einu sinni næði til að matast. 21 Þegar vinir hans heyrðu hvernig ástatt var, komu þeir og vildu fá hann með sér heim til sín. „Hann er ekki með sjálfum sér.“ sögðu þeir.
Fyrirgefanleg synd
22 Fræðimenn þjóðarinnar, sem komnir voru frá Jerúsalem, sögðu: „Vandi Jesús er sá, að Satan, foringi illu andanna, er í honum og þess vegna hlýða illu andarnir honum.“
23 Jesús kallaði þessa menn til sín og spurði með dæmi, sem allir skildu: „Hvernig getur Satan rekið Satan út? 24 Sundrað ríki mun falla. 25 Heimili, þar sem hver höndin er upp á móti annarri, leysist upp. 26 Þar af leiðir að ef Satan berst gegn sjálfum sér, þá fær hann ekki staðist og það er úti um hann. 27 Sterkan mann verður að binda áður en hægt er að ræna úr húsi hans (og eins verður að binda Satan áður en hægt er að reka þessa illu anda hans út). 28 Ég lýsi því yfir að sérhverja þá synd, sem mennirnir kunna að drýgja – jafnvel lastmæli gegn mér – er hægt að fyrirgefa, 29 en last gegn heilögum anda verður aldrei fyrirgefið. Það er eilíf synd.“
30 Þetta sagði hann þeim vegna þess að þeir héldu því fram að hann gerði kraftaverk í mætti Satans (í stað þess að viðurkenna að það væri fyrir kraft heilags anda).
31-32  Rétt í þessu komu móðir hans og bræður að húsinu, sem þegar var fullt út úr dyrum. Þau sendu honum boð um að koma út og tala við sig. „Móðir þín og bræður eru úti og spyrja um þig,“ var sagt við hann. 33 „Hver er móðir mín?“ spurði hann. „Og hverjir eru bræður mínir?“ 34 Síðan leit hann á þá sem umhverfis hann voru og sagði: „Þessir eru móðir mín og bræður. 35 Hver sá, sem gerir vilja Guðs, er bróðir minn, systir eða móðir.“