5
Nokkur orð til leiðtoganna
Prestar og leiðtogar, nú tala ég til ykkar sem samstarfsmaður. Ég sá Krist með eigin augum deyja á krossinum og ég mun einnig fá hlutdeild í dýrð hans og vegsemd þegar hann kemur aftur.
Kæru samstarfsmenn, ég minni ykkur á að annast hjörð Guðs. Gætið hennar af fúsleika, en ekki með nauðung; ekki launanna vegna, heldur vegna þess að ykkur er umhugað að þjóna Drottni. Stjórnið ekki söfnuðinum með harðri hendi, heldur gangið á undan með góðu fordæmi og þegar Jesús Kristur – yfirhirðirinn – kemur, mun hann launa ykkur og launin verða hlutdeild í hans eilífu dýrð.
Ungu menn, verið leiðtogum ykkar undirgefnir. Þjónið hver öðrum í auðmýkt, því að Guð er andstæðingur dramblátra en blessar og hjálpar auðmjúkum. Ef þið auðmýkið ykkur fyrir Guðs voldugu hönd, mun hann á sínum tíma upphefja ykkur.
Varpið öllum áhyggjum ykkar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir ykkur.
Verið á verði – gætið ykkar á árásum Satans, því að hann er versti óvinur ykkar. Hann æðir um og öskrar, eins og hungrað ljón sem leitar að bráð. Verið viðbúin árásum hans. Treystið Drottni. Munið að kristnir menn um allan heim þola sömu þjáningar og þið.
10 En eftir að þið hafið þjáðst skamma hríð, mun Guð, sem birtir kærleika sinn í Kristi, veita ykkur af sinni eilífu dýrð. Hann mun koma sjálfur til að sækja ykkur og leiða ykkur inn í dýrð sína og gera ykkur sterkari en nokkru sinni fyrr. 11 Hans er mátturinn um alla framtíð, öld eftir öld. Amen.
12 Þetta stutta bréf hef ég skrifað ykkur með hjálp Silvanusar, en hann er traustur bróðir að mínu áliti. Ég vona að bréfið verði ykkur til uppörvunar, því að með því hef ég reynt að benda ykkur á leiðina að blessun Guðs og ég vona einnig að það hjálpi ykkur til að vera staðföst í kærleika hans.
13 Söfnuðurinn hér í Róm sendir ykkur kveðjur sínar og það gerir einnig sonur minn, hann Markús. 14 Heilsið hvert öðru á kærleiksríkan hátt. Friður sé með ykkur öllum, sem Kristi tilheyrið.
Pétur