108
1-2  Ó, Guð, nú vil ég lofa þig! Ég vil syngja og fagna frammi fyrir þér.
Vaknaðu, harpa og gígja! Við viljum bjóða morgunroðann velkominn með söng! Ég vil lofa þig um víða veröld, Drottinn, vegsama þig hjá hverri þjóð. Því að miskunn þín nær til skýjanna og trúfesti þín er ómælanleg! Láttu tign þína og mátt birtast og dýrð þína breiðast yfir jörðina. Hlustaðu á ákall vina þinna og bjargaðu þeim með krafti þínum, já, bænheyrðu þá.
Fögnum og gleðjumst því að við höfum fengið loforð frá Guði! Hann hefur lofað að gefa okkur Síkemland og Súkkótdal. „Ég á Gíleað, ég á Manasse og Efraím er hjálmurinn á höfði mínu. Júda er veldissproti minn 10 en Móab og Edóm fyrirlít ég og yfir Filisteu æpi ég siguróp.“
11 Hver nema Guð getur veitt mér styrk til að sigrast á víggirtum borgum? Hver nema hann getur opnað mér leið inn í Edóm?
12 Drottinn, hefur þú útskúfað okkur? Hefur þú gert her okkar óvígan? 13 Ó, veittu okkur lið gegn óvinum okkar, því að mannahjálp er gagnslaus. 14 Með hjálp Guðs munum við vinna hetjudáð og hann mun gjörsigra óvini okkar.