116
Ég elska Drottin, því að hann heyrir bænir mínar – og svarar þeim. Meðan ég dreg andann mun ég biðja til hans, því að hann lítur niður og hlustar á mig.
Ég horfðist í augu við dauðann – var hræddur og hnípinn. Þá hvíslaði ég: „Drottinn, frelsaðu mig!“ Náðugur er Drottinn og góður er hann! Drottinn hlífir vondaufum og styrkir hjálparvana. Nú get ég slakað á og verið rór, því að Drottinn hefur gert mikla hluti fyrir mig. Hann hefur bjargað mér frá dauða, augum mínum frá gráti og fótum mínum frá hrösun. Ég fæ að lifa! Já, lifa með honum hér á jörðu!
10-11  Þegar ég átti erfitt hugsaði ég: Þeir segja ósatt, að allt muni snúast mér í hag. 12 En nú, hvernig get ég nú endurgoldið Drottni góðverk hans við mig? 13 Ég vil lyfta bikarnum og vínberjalegi að fórn, þakka honum lífið. 14 Fórnina sem ég lofaði Drottni, færi ég nú í allra augsýn. 15 Hann elskar vini sína og lætur þá ekki deyja án gildrar ástæðu.
16 Drottinn, þú hefur leyst fjötra mína, því vil ég þjóna þér af öllu hjarta. 17 Ég vil lofa þig og færa þér þakkarfórn. 18-19  Í forgörðum musteris Drottins í Jerúsalem vil ég – og það í augsýn allra – færa honum allt sem ég hafði lofað. Dýrð sé Drottni!