128
Sæll er hver sá sem heiðrar Drottin, treystir honum og hlýðir.
Honum mun launað með velgengni og hamingju. Kona hans hugsar vel um heimilið – og ekki mun þau skorta börn! Þarna sitja þau að matnum, þróttmikil og frísk eins og ung olífutré! Þannig launar Guð þeim sem elska hann og treysta honum.
Drottinn blessi þig frá musterinu á Síon. Alla þína ævidaga muntu gleðjast yfir velgengni Jerúsalem og eignast marga afkomendur. Friður Guðs sé yfir Ísrael!