13
1-2  Hversu lengi ætlar þú Drottinn að gleyma mér – að eilífu, eða hvað? Ætlar þú sífellt að horfa í aðra átt þegar ég er í nauðum staddur? Hve lengi verð ég að byrgja inni angist mína? Hve lengi eiga óvinir mínir að hreykja sér upp yfir mig? Svara mér Drottinn, Guð minn, og sendu mér ljós þitt, annars er úti um mig!
Þaggaðu niður í óvinum mínum sem segja: „Við höfum sigrað hann!“ Láttu þá ekki hlakka yfir því að ógæfa hendi mig.
En, – ég mun treysta þér og miskunn þinni hvað sem á gengur og fagna yfir hjálp þinni! Ég vil lofsyngja Drottni, því að ríkulega blessaði hann mig.