132
Manst þú, Drottinn, allar þjáningar Davíðs? 2-5 Hann náði ekki að hvílast, kom ekki dúr á auga. Þá kom honum í hug að reisa hús yfir örk þína, musteri fyrir hinn volduga í Ísrael. Og hann hét því að svo skyldi verða og sór hátíðlegan eið fyrir Drottni.
Fyrst var örkin í Síló í Efrata og síðan í Jaar. Nú fær hún stað í musterinu, bústað Guðs hér á jörð. Þar munum við falla fram og tilbiðja hann. Rís þú upp, Drottinn! Gakktu inn í musteri þitt ásamt örk þinni, tákni máttar þíns!
Við munum íklæða prestana hvítum skrúða, klæðum hreinleikans. Og þjóðin mun hrópa fagnaðaróp!
10 Vísaðu Davíð þjóni þínum ekki frá – konunginum sem þú útvaldir handa þjóð þinni. 11 Þú lofaðir Davíð því að sonur hans yrði eftirmaður hans, skyldi erfa hásætið. Vissulega munt þú aldrei ganga á bak orða þinna! 12 Og annað fyrirheit gafstu Davíð líka: Ef afkomendur hans héldu ákvæði sáttmála þíns við þig, þá mundi konungdómurinn haldast í ætt Davíðs að eilífu.
13 Ó, Drottinn, þú hefur útvalið Jerúsalem að bústað þínum.
14 „Þetta er hvíldarstaður minn um aldur og ævi,“ sagðir þú, „staðurinn sem ég hef þráð. 15 Borg þessa vil ég blessa og auðga og fátæklingar hennar fá nóg að borða. 16 Presta hennar mun ég íklæða hjálpræði, og hinir trúuðu er þar búa munu hrópa fagnaðaróp. 17 Veldi Davíðs mun aukast, og ég mun gefa honum son, eftirmann í hásæti hans. 18 Ég hyl óvini hans skömm, en á honum skal kóróna hans ljóma.“