143
Drottinn, heyrðu bæn mína. Svaraðu ákalli mínu, því að þú ert réttlátur og stendur við orð þín. Leiddu mig ekki fyrir dóm, því að enginn er réttlátur frammi fyrir þér.
Óvinir mínir eltu mig og náðu mér. Þeir slógu mig til jarðar og drógu mig inn í myrkrið – ég er eins og þeir sem gengnir eru til grafar. Ég eygi enga von, er lamaður af ótta. Ég hugsa um máttarverk þau sem þú vannst fyrir langa löngu. Ég leita þín. Mig þyrstir eftir þér eins og örþrota land, skrælnað af þurrki. Komdu skjótt, Drottinn og bjargaðu mér, því að ég er að örmagnast! Snúðu ekki við mér bakinu, því að þá væri úti um mig. Sýndu mér miskunn þína að morgni, því að þér treysti ég. Sýndu mér þann veg er ég á að ganga, því að bæn mín er beðin í einlægni. Frelsaðu mig undan óvinum mínum, Drottinn minn, ég vil flýja í skjól þitt. 10 Hjálpaðu mér að gera vilja þinn, því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um réttan veg.
11 Drottinn, láttu mig lífi halda og leystu mig úr öllum þessum nauðum, því að þú ert réttlátur og veist að ég hef ekkert til saka unnið. 12 Ég er þjónn þinn. Þú elskar mig og ert mér svo góður! Ryð þú burt þessum óvinum mínum og láttu þá hverfa sem ofsækja mig.