18
Þennan sálm orti Davíð eftir að Drottinn hafði frelsað hann undan óvinum hans, þeirra á meðal Sál konungi.
Drottinn – ég elska þig! Þú hefur gert stórkostlega hluti fyrir mig! Drottinn er vígi mitt, þar er ég öruggur. Enginn getur veitt mér eftirför og unnið á mér. Hann er felustaður minn, frelsari og varðborg, kletturinn þar sem enginn getur náð mér! Hann er skjöldur minn. Styrkur hans er eins og uxans sem mundar horn sín í vígahug! Mér nægir að ákalla hann – lof sé Guði! – og ég frelsast undan öllum óvinum mínum.
Ég var bundinn hlekkjum dauðans og holskeflur óguðlegra risu ógnandi gegn mér. Umkringdur og hjálparvana barðist ég um í netinu sem dró mig niður í djúp dauðans.
Þá hrópaði ég til Drottins. – Hróp mitt náði eyrum hans á himnum! Þá lyftist jörðin og nötraði og undirstöður fjallanna skulfu vegna bræði hans. Hvílíkur landskjálfti! Já, Drottinn reiddist. Eldsblossar gengu út af munni hans svo að jörðin sviðnaði og reykur streymdi um nasir hans. 10 Hann sveigði himininn og steig niður mér til bjargar! Skýjasorti var undir fótum hans. 11 Hann steig á bak kerúbi og sveif til mín með hraða vindsins. 12 Hann skýldi sér með myrkri, leyndi komu sinni með regnsorta og dimmu skýi. 13 En svo birtist hann í skýjunum! Hvílík hátign! Eldingar leiftruðu og haglið dundi!
14 Himnarnir nötruðu í þrumugný Drottins. Guð allra guða hafði talað! 15 Hann sendi út eldingar sínar sem örvar og tvístraði óvinum mínum. Sjá, hvernig þeir flýðu! 16 Þá hljómaði skipun Drottins – og hafið hopaði og það sá í mararbotn!
17 Þá seildist Drottinn niður frá himnum, greip mig og frelsaði mig úr neyðinni. Hann bjargaði mér úr hyldýpi dauðans.
18 Hann frelsaði mig frá ofurafli óvinarins, úr höndum þeirra sem hötuðu mig, því í greipum þeirra mátti ég mín einskis.
19 Þeir réðust á mig þegar ég mátti mín einskis, en Drottinn studdi mig. 20 Hann leiddi mig í öruggt skjól, því að hann hefur velþóknun á mér. 21 Drottinn launaði mér réttlæti mitt og hreinleika. 22 Því að ég hef hlýtt boðorðum hans og ekki syndgað með því að snúa í hann baki. 23 Ég gætti lögmáls hans í hvívetna og lítilsvirti enga grein þess. 24 Ég lagði mig fram við að halda það og forðaðist ranglæti. 25 Þess vegna hefur Drottinn launað mér með blessun, því að ég gerði það sem rétt var og gætti hreinleika hjarta míns. Allt þetta þekkti hann, enda vakir hann yfir hverju skrefi mínu.
26 Drottinn, þú miskunnar þeim sem auðsýna miskunn og ert góður við ráðvanda. 27 Þú blessar hjartahreina en snýrð þér frá þeim sem yfirgefa þig. 28 Þú hlífir hinum hógværu, en ávítar stolta og hrokafulla. 29 Já, þú lætur lampa minn skína. Drottinn, Guð minn, hefur lýst upp myrkrið sem umlukti mig. 30 Með þinni hjálp stekk ég yfir múra og brýt niður borgarveggi óvinarins.
31 Drottinn, hann er mikill Guð! Fullkominn í öllum hlutum! Orð hans standast öll. Skjöldur er hann öllum þeim sem til hans leita. 32 Því hver er hinn sanni Guð nema Drottinn? Og hver er bjargið nema hann?
33 Hann styrkir mig og verndar hvar sem ég fer. 34 Hann gerir fætur mína fima sem geitanna á fjöllunum. Hann tryggir mér fótfestu á hæstu tindum. 35 Hann æfir hendur mínar til hernaðar og gerir mér kleift að spenna eirbogann.
36 Þú fékkst mér skjöld hjálpræðis þíns. Hægri hönd þín, Drottinn, styður mig, mildi þín hefur gert mig mikinn. 37 Þú lagðir veg fyrir fætur mína og þar mun ég ekki hrasa. 38 Ég veitti óvinum mínum eftirför, elti þá uppi og eyddi þeim. 39 Ég tók þá einn af öðrum – þeir gátu enga vörn sér veitt – allir lágu í valnum að lokum. 40 Hjálpin frá þér var eins og brynja í bardaganum. Óvini mína beygðir þú undir mig. 41 Þú stökktir þeim á flótta og ég eyddi öllum þeim sem ofsóttu mig.
42 Þeir hrópuðu á hjálp, en fengu enga. Þeir æptu til Drottins, en hann ansaði ekki, 43 en ég muldi þá mélinu smærra og dreifði þeim upp í vindinn. Ég fleygði þeim burt eins og rusli á haug. 44-46 Þú veittir mér sigur í sérhverri orustu. Þjóðirnar komu og þjónuðu mér. Jafnvel þær sem ég þekkti ekki komu nú og veittu mér lotningu. Útlendingar sem aldrei höfðu mig augum litið lýstu sig reiðubúna til þjónustu. Skjálfandi stigu þeir niður úr virkjum sínum.
47 Guð lifir! Lofaður sé hann, klettur hjálpræðis míns. 48 Hann er sá Guð sem endurgeldur þeim sem ofsækja mig og auðmýkir þjóðir fyrir augum mér.
49 Hann frelsar mig frá óvinum mínum. Hann sér til þess að þeir ná ekki til mín og bjargar mér undan öflugum andstæðingum.
50 Fyrir þetta, Drottinn minn, lofa ég þig í áheyrn þjóðanna. 51 Oftsinnis hefur þú frelsað mig – það var kraftaverk í öll skiptin! Þú gerðir mig að konungi, þú hefur elskað mig og auðsýnt mér gæsku og eins muntu gera við afkomendur mína.