21
1-2  Drottinn! Yfir valdi þínu og mætti fagnar konungurinn. Hann gleðst stórlega yfir hjálp þinni! Því að þú hefur veitt honum það sem hjarta hans þráir, allt sem hann bað þig um!
Þú leiddir hann til valda og veittir honum velgengni og blessun. Þú krýndir hann kórónu úr gulli. Hann bað um langa ævi og góða daga og þú heyrðir bænir hans. Ævidagar hans munu aldrei taka enda! Frægð og frama gafst þú honum, íklæddir hann vegsemd og dýrð. Þú veitir honum eilífa blessun og gleður hann með nærveru þinni meira en orð fá lýst. Konungurinn treystir Drottni og því mun hann aldrei hrasa né falla. Hann reiðir sig á elsku og trúfesti þess Guðs sem er æðri öllum guðum.
Drottinn, hönd þín mun ná öllum óvinum þínum og hatursmönnum. 10-11  Þegar þú stígur fram eyðast þeir í eldinum sem út frá þér gengur. Drottinn mun afmá þá og afkomendur þeirra.
12 Samsæri hafa þeir gert gegn þér Drottinn, en það mun ekki takast. 13 Þegar þeir sjá boga þinn spenntan, flýja þeir sem fætur toga.
14 Drottinn, þinn er mátturinn og dýrðin! Heyr þú lofgjörð okkar! Um máttarverk þín syngjum við og kveðum!.