25
Drottinn, ég sendi bæn mína upp til þín. Hafnaðu mér ekki, Drottinn, því að ég treysti þér. Láttu ekki óvini mína yfirbuga mig. Láttu þá ekki vinna sigur. Sá sem treystir Drottni, mun ekki verða til skammar en hinir ótrúu verða það.
Drottinn, sýndu mér þann veg sem ég á að ganga, bentu mér á réttu leiðina. Leiddu mig og kenndu mér því að þú ert sá eini Guð sem getur hjálpað. Á þig einan vona ég. 6-7  Drottinn, minnstu ekki æskusynda minna. Líttu til mín miskunnaraugum og veittu mér náð. Minnstu mín í elsku þinni og gæsku, Drottinn minn.
Drottinn er góður og fús að vísa þeim rétta leið, sem villst hafa. Hann sýnir þeim rétta leið sem leita hans með auðmjúku hjarta. 10 Þeir sem hlýða Drottni fá að ganga á hans vegum og upplifa elsku hans og trúfesti.
11 En Drottinn, hvað um syndir mínar? Æ, þær eru svo margar! Fyrirgef þú mér vegna elsku þinnar og nafni þínu til dýrðar.
12 Sá maður sem óttast Drottin – heiðrar hann og hlýðir honum – mun njóta leiðsagnar Guðs í lífinu. 13 Hann verður gæfumaður og börn hans erfa landið.
14 Drottinn sýnir trúnað og vináttu þeim sem óttast hann. Hann trúir þeim fyrir leyndarmálum sínum!
15 Ég mæni á Drottin í von um hjálp, því að hann einn getur frelsað mig frá dauða. 16 Kom þú, Drottinn, og miskunna mér, því að ég er hrjáður og hjálparlaus og 17 vandi minn fer stöðugt vaxandi. Ó, frelsaðu mig úr neyð minni! 18 Líttu á eymd mína og sársauka og fyrirgefðu mér syndir mínar!
19 Sjáðu óvini mína og hve þeir hata mig!
20 Frelsaðu mig frá þessu öllu! Bjargaðu mér úr klóm þeirra! Láttu engan segja að ég hafi treyst þér án árangurs.
21 Láttu hreinskilni og heiðarleika vernda mig – já vera lífverði mína! Ég reiði mig á vernd þína. 22 Ó, Guð, frelsa þú Ísrael úr öllum nauðum hans.