48
1-2  Mikill er Drottinn! Vegsömum hann, já lofum hann! Hann býr á sínu helga fjalli í Jerúsalem. Fallegt er Síonfjall í norðri. Fjallið sem þjóðin elskar, þar sem konungurinn mikli býr.
Drottinn sjálfur er verndari Jerúsalem. Konungar jarðarinnar sátu þar ráðstefnu. Þeir skoðuðu borgina. Þeir urðu agndofa, hræddir og flýðu. Hátign Jerúsalem skelfdi þá. Þeir urðu magnþrota eins og kona sem fæðir barn! Því að með austanvindinum einum tortímir þú heilum her! Dýrð þín, Jerúsalem, er á allra vörum. Þú ert borgin þar sem Guð býr, hann sem ríkir yfir hersveitum himinsins. Við höfum séð hana eigin augum! Guð hefur reist Jerúsalem. Hún mun standa að eilífu.
10 Drottinn, í musterinu hugleiðum við kærleika þinn. 11 Nafn þitt er þekkt um alla jörðina. Þú ert lofaður um víða veröld vegna hjálpræðis þíns. Vegsemd þín breiðist um allan heim því alls staðar framkvæmir þú réttlætisverk. 12 Gleð þig, Jerúsalem! Gleð þig Júdaættkvísl! Því að Guð mun vissulega láta þig ná rétti þínum. 13 Komið og skoðið borgina! Gangið um og teljið turnana! 14-15  Lítið á múrinn og sjáið hallirnar og segið komandi kynslóð frá því að slíkur sé Drottinn! Hann mun leiða okkur um aldur og ævi.