53
1-2  En sú heimska að segja: „Guð er ekki til.“ Hvers vegna segja menn slíkt? Vegna þess að hjörtu þeirra eru spillt og verk þeirra vond.
Guð lítur niður af himni. Hann rennir augum yfir mannanna börn. Skyldi nokkur vera hygginn og leita vilja Guðs? Nei, allir hafa þeir snúið í hann baki. Þeir eru spilltir. Enginn þeirra gerir vilja Guðs, ekki einn einasti! Þeir munu fá sinn dóm, illgjörðamennirnir sem ofsækja lýð Guðs. Þeir munu þjást af ótta, jafnvel þegar engin hætta er! Guð mun á sínum tíma tvístra þeim. Hann hefur fellt sinn dóm og hafnað þeim.
Ó, að Guð kæmi frá Síon og frelsaði Ísrael! Þá munum við taka gleði okkar á ný.