64
1-3 Ó, Drottinn, hlustaðu á neyðaróp mitt, því að hópur af þorpurum og bófum hafa gert samsæri gegn mér. Verndaðu mig! Orð þeirra eru eins og rýtingur í bakið. Þeir hvæsa á mig og nísta hjarta mitt. 5-6  Þeir senda mér kaldar kveðjur úr launsátri, vinna verk sín í skyndi, eru hvergi smeykir. Þeir sitja á svikráðum. Hittast á laun og leggja gildrur fyrir aðra. „Þetta sér enginn,“ segja þeir. Þeir upphugsa ill verk og segja „Nú er allt klappað og klárt!“ Hjörtu þeirra fyllast illsku og svikum.
En Guð mun slá þá til jarðar. Eins og hendi sé veifað hittir örin þá Tunga þeirra verður þeim að falli. Menn hrista höfuðið yfir þeim og 10 ótta slær á alla. Þeir játa mikilleik Guðs og hans voldugu verk, gefa gætur að því sem hann gerir. 11 En hinir trúuðu munu fagna í Drottni, leita hjálpar hans og hrósa sigri með honum.