72
Guð, hjálpa þú konunginum, að hann fái skorið úr málum manna eftir vilja þínum og hjálpaðu syni hans til að gera rétt. 2-3  Gefðu að hann dæmi þjóð þína með sanngirni og láti hina snauðu ná rétti sínum. Stjórnspeki hans leiði af sér velferð og grósku. Styrktu hann að vernda fátæklinga og þurfandi og eyða kúgurum þeirra. Þá mun hann lifa meðan sólin skín og tunglið gefur birtu. Já, að eilífu!
Stjórn hans verður mild og góð eins og gróðrarskúr á sprettutíma. Á ríkisárum hans mun réttlætið blómgast og friður eflast, já, meðan veröldin er til. Ríki hans mun ná frá hafi til hafs, frá Evfrat-fljóti til endimarka jarðar. Óvinir hans munu lúta honum og leggjast flatir á jörðina við fætur hans. 10 Konungarnir frá Tarsus og eylöndunum munu færa honum gjafir, og skatt þeir frá Saba og Seba. 11 Allir konungar munu lúta honum og þjóðir þeirra þjóna honum. 12 Hann mun bjarga hinum snauða er hrópar á hjálp, og hinum þjáða sem enginn réttir hjáparhönd. 13 Hann aumkast yfir bágstadda og þá sem ekkert eiga og liðsinnir fátæklingum. 14 Hann verndar þá og leysir frá ofríki og kúgun því að líf þeirra er dýrmætt í augum hans. 15 Lífið blasir við honum og menn munu gefa honum gull frá Saba. Hann mun njóta fyrirbæna margra og fólk mun blessa hann liðlangan daginn. 16 Landið mun gefa góða uppskeru, einnig til fjalla eins og í Líbanon. Fólki mun fjölga í borgunum eins og gras vex á engi! 17 Nafn hans mun lofað að eilífu og meðan sólin skín mun orðstír hans aukast. Allir munu óska sér blessunar hans og þjóðirnar segja hann sælan.
18 Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, hann einn gerir furðuverk. 19 Lofað sé hans dýrlega nafn að eilífu! Öll jörðin fyllist dýrð hans! Amen, já amen!
20 (Hér enda sálmar Davíðs Ísaísonar.)