76
1-2  Orðstír Drottins er mikill í Júda og Ísrael. Bústaður hans er í Jerúsalem. Hann situr á Síonfjalli. Þar sundurbraut hann vopn óvina okkar.
Öll háreist fjöll blikna í ljóma dýrðar hans! Úrvalslið óvinanna er gjörsigrað! Þeir liggja flatir, sofnaðir svefninum langa. Enginn þeirra getur framar lyft hendi. Þegar þú, Guð Jakobs, hastaðir á þá, féllu bæði hestar og riddarar. Ekki er að undra þótt menn óttist þig! Hver fær staðist reiði Guðs?! Þegar þú birtir þeim dóminn frá himnum, þá nötraði jörðin og þagnaði fyrir þér. 10 Þú stígur fram til að refsa illgjörðamönnunum, en verndar hina auðmjúku. 11 Þegar við sjáum heimsku og reiði mannanna, þá skiljum við enn betur hve dýrð þín er mikil.
12 Efnið heitin sem þið gáfuð Drottni, Guði ykkar. Allir sem umhverfis hann eru færa honum gjafir. Þeir nálgast hann með óttablandinni virðingu. 13 Hann er sá sem lægir ofstopa höfðingjanna og kemur konungum jarðarinnar á kné!