78
Þjóð mín, hlustaðu á kenningu mína. Gefðu gaum að því sem ég hef að segja. 2-3  Nú ætla ég að rifja upp fyrir þér liðna atburði, frásagnir sem varðveist hafa frá kynslóð til kynslóðar. Ég birti ykkur sannleikann, svo að þið getið sagt börnum ykkar frá dásemdarverkum Drottins, öllum þeim undrum sem hann vann. Lögmál sitt gaf hann Ísrael og bauð forfeðrunum að kenna það börnum sínum sem síðan skyldu kenna það sínum afkomendum. Þannig skyldi lögmál hans berast frá einni kynslóðinni til annarrar. Því hefur sérhver kynslóð getað haldið lög Guðs, treyst honum og heyrt um hans dásemdarverk. Ný kynslóð skyldi ekki þurfa að fara að fordæmi feðra sinna sem voru þrjóskir, óhlýðnir og ótrúir og forhertu sig gegn Guði.
Þótt íbúar Efraím væru alvopnaðir, þá flúðu þeir þegar að orustunni kom. 10 Þannig rufu þeir sáttmálann við Guð og fóru sína eigin leið. 11-12  Þeir gleymdu máttarverkum Drottins, sem hann hafði fyrir þá gert og forfeður þeirra í Egyptalandi, 13 þegar hann klauf hafið og leiddi þá yfir þurrum fótum. Vatnið stóð eins og veggur til beggja handa! 14 Að degi til leiddi hann þá með skýi, en eldstólpa um nætur. 15 Hann rauf gat á klettinn í eyðimörkinni. Vatnið streymdi fram og þeir svöluðu þorsta sínum.
16 Já, það flæddi frá klettinum, líkast rennandi á! 17 Samt héldu þeir fast við þrjósku sína og syndguðu gegn hinum hæsta Guði.
18 Þeir kvörtuðu og kveinuðu og heimtuðu annað að borða en það sem Guð gaf þeim. 19-20  Þeir ásökuðu jafnvel sjálfan Guð og sögðu: „Hann gaf okkur vatn, en hvers vegna fáum við ekki brauð eða kjöt?!“ 21 Drottinn hlustaði og honum rann í skap, reiði hans upptendraðist gegn Ísrael. 22 Enda treystu þeir honum ekki, né trúðu forsjá hans. 23 Jafnvel þótt hann lyki upp himninum – eins og glugga! – 24 og léti manna rigna niður. 25 Já, þeir átu englabrauð! – og urðu mettir.
26 Þá lét hann austanvind blása og stýrði vestanvindinum með krafti sínum. 27 Og viti menn, fuglum rigndi af himni, – þeir voru eins og sandur á sjávarströnd! 28 Af hans völdum féllu þeir til jarðar um allar tjaldbúðirnar. 29 Og fólkið át nægju sína. Hann mettaði hungur þeirra. 30 En varla höfðu þeir lokið matnum – fæðan var enn í munni þeirra, 31 þá reiddist Drottinn þeim og lagði að velli æskumenn Ísraels. 32 En þeir sáu sig ekki um hönd, en héldu áfram að syndga og vildu ekki trúa kraftaverkum Drottins. 33 Þess vegna stytti hann ævi þeirra og sendi þeim miklar hörmungar. 34 En þegar neyðin var stærst, tóku þeir að leita Guðs. Þeir iðruðust og snéru sér til hans. 35 Þeir viðurkenndu að Guð er eini grundvöllur lífsins – að hinn hæsti Guð væri frelsari þeirra. 36 En því miður fylgdu þeir honum aðeins í orði kveðnu, en ekki af heilum hug, 37 hjarta þeirra var langt frá honum. Þeir stóðu ekki við orð sín.
38 Samt var hann þeim miskunnsamur, fyrirgaf syndir þeirra og tortímdi þeim ekki. Margoft hélt hann aftur af reiði sinni. 39 Hann minntist þess að þeir voru dauðlegir menn, eins og andblær sem kemur og fer. 40 Já, oft risu þeir gegn Guði í eyðimörkinni og ollu honum vonbrigðum. 41 Aftur og aftur sneru þeir við honum baki og freistuðu hans. 42 Þeir gleymdu krafti hans og kærleika og hvernig hann hafði frelsað þá frá óvinum þeirra. 43 Þeir gleymdu plágunum sem hann sendi Egyptum í Sóan 44 þegar hann breytti fljótum þeirra í blóð, svo að enginn gat drukkið. 45 Eða þegar hann fyllti landið af flugum og froskum! 46 Lirfurnar spilltu uppskerunni og engispretturnar átu allt, hvort tveggja var frá honum komið. 47 Hann eyddi vínviði þeirra með hagléli og mórberjatrjánum með frosti. 48 Búpeningurinn hrundi niður í haganum, haglið rotaði hann og sauðirnir drápust í eldingum. 49 Hann úthellti reiði sinni yfir þá, sendi þeim ógn og skelfingu. Hann leysti út sendiboða ógæfunnar – engla sem létu þá kenna á því! 50 Hann gaf reiðinni lausan tauminn. Og ekki hlífði hann Egyptunum. Þeir fengu vænan skerf af plágum og sjúkdómum. 51 Þá deyddi hann frumburði Egypta, efnilegan ungviðinn, sem vonirnar voru bundnar við. 52 Sinn eigin lýð leiddi hann styrkri hendi gegnum eyðimörkina. 53 Hann var skjól þeirra og vörn. Þeir þurftu ekkert að óttast, en hafið gleypti óvini þeirra. 54 Hann greiddi för þeirra til fyrirheitna landsins, til hæðanna sem hann hafði skapað. 55 Íbúum landsins stökkti hann á flótta en gaf þar ættkvíslum Ísraels erfðahlut og skjól. 56 En þótt þeir nytu gæsku Guðs, risu þeir gegn hinum hæsta og fyrirlitu boðorð hans. 57 Þeir sneru af leið og rufu trúnað rétt eins og feður þeirra. Eins og bogin ör misstu þeir marksins sem Guð hafði sett þeim. 58 Þeir tóku aðra guði, reistu þeim ölturu og egndu Drottin á móti sér. 59 Guð sá verk þeirra og reiddist – fékk viðbjóð á Ísrael. 60 Hann yfirgaf helgidóm sinn í Síló, bústað sinn meðal manna. 61 Örk sína lét hann falla í hendur óvinanna og vegsemd hans var óvirt af heiðingjum. 62 Hann reiddist lýð sínum og lét hann falla fyrir sverði óvinanna. 63 Æskumenn Ísraels fórust í eldi og ungu stúlkurnar upplifðu ekki sinn brúðkaupsdag. 64 Prestunum var slátrað og ekkjur þeirra dóu áður en þær gátu harmað þá. 65 Þá var sem Drottinn vaknaði af svefni, eins og hetja sem rís upp úr vímu, 66 og hann gaf þeim vænt spark í bakhlutann og sendi þá burt með skömm, sömu leið og þeir komu. 67 Hann hafnaði fjölskyldu Jósefs, ætt Efraíms, 68 en kaus Júdaættkvísl og Síonfjall, sem hann elskar. 69 Þar reisti hann musteri sitt – voldugt og traust rétt eins og himin og jörð. 70 Hann kaus Davíð sem þjón sinn, tók hann frá sauðunum, 71 úr smalamennskunni, til að verða leiðtogi og hirðir þjóðar sinnar. Og hann gætti hennar af öryggi og með hreinu hjarta.