85
1-2  Drottinn, þú hefur baðað land þetta blessun! Þú hefur snúið hlutunum Ísrael í hag og fyrirgefið syndir þjóðar þinnar, já, hulið þær allar! Reiði þína hefur þú líka dregið í hlé.
Dragðu okkur nær þér svo að við getum elskað þig heitar, að þú þurfir ekki að reiðast okkur á ný. (Eða mun reiði þín vara að eilífu, frá kynslóð til kynslóðar?) Lífgaðu okkur við, þjóð þína, svo að við getum aftur lofað þig. Leyfðu okkur að njóta elsku þinnar og gæsku, ó Guð, og veittu okkur hjálp þína.
Þegar Drottinn talar til þjóðar sinnar, hlusta ég vel, þegar hann ávarpar sinn útvalda lýð. Hann flytur okkur frið og velgengni þegar við snúum hjörtum okkar til hans. 10 Vissulega njóta þeir hjálpar hans þeir sem hlýða honum og heiðra hann. Velgengni og blessun hans mun breiðast yfir allt landið. 11 Miskunn og sannleikur munu mætast, réttlæti og friður kyssast! 12 Trúfestin eflist á jörðu og réttlætið brosir frá himni! 13 Drottinn blessar landið og það ber margfalda uppskeru. 14 Réttlæti og friður fylgir Drottni.