89
1-2  Ég vil syngja um miskunn Drottins að eilífu! Ungir sem gamlir skulu fá að heyra um trúfesti þína. Elska þín og náð vara að eilífu og trúfesti þín stendur óhögguð eins og himinninn.
4-5  Svo segir Drottinn Guð: „Ég hef gert sáttmála við Davíð, minn útvalda þjón. Ég hef unnið þann eið, að afkomendur hans skuli sitja á konungsstóli héðan í frá og að eilífu!“
Himinninn lofi máttarverk þín, Drottinn og herskarar englanna vegsami trúfesti þína. Því að hver á himnum kemst í samjöfnuð við Guð? Hinn mesti meðal englanna, hver er hann við hlið Drottins?! Hinir voldugu englar nálgast hann með ótta og virðingu. Hann er ægilegur í þeirra augum. Drottinn, þú konungur hinna himnesku hersveita, enginn kemst í samjöfnuð við þig! Trúfestin er einkenni þitt!
10 Þú hefur hemil á ofstopa hafsins, stöðvar óveðursöldur. Með einu orði lægir þú þær. 11 Þú rotaðir skrímslið, það lá marflatt – og tvístraðir óvinum þínum með undramætti. 12 Himinninn og jörðin, allt er það þitt. Þú skapaðir það. 13 Þú skapaðir norðrið og suðrið líka. Tabor og Hermon kætast, hin háu fjöll, sem hönd þín gjörði. 14 Mikill er máttur þinn! Hægri hönd þín er upphafin í mætti og dýrð!
15-16  Tvær eru undirstöður hásætis þíns: Réttvísi og réttlæti, og miskunn og trúfesti eru fylgdarsveinar þínir. Sælir eru þeir sem heyra fagnaðarópið – þeir sem ganga í ljósinu sem stafar frá Drottni. 17 Þín vegna gleðjast þeir alla daga og fagna yfir þínum réttlátu verkum. 18 Þú ert styrkur þeirra. Þetta er undursamlegt! Já, við hressumst og gleðjumst því við vitum að þú hefur velþóknun á okkur! 19 Sjálfur Drottinn er okkar vörn og hann, hinn heilagi í Ísrael – sjálfur Guð – hefur gefið okkur konung.
20 Þú talaðir við spámann þinn í sýn og sagðir: „Ég hef fundið rétta manninn meðal fólksins, hann skal verða konungur! 21 Það er Davíð, þjónn minn! Ég hef smurt hann minni heilögu olíu.
22 Ég vil veita honum kraft og styrkja hann á göngunni. 23 Óvinir hans skulu ekki fella hann, né illmennin kúga hann. 24 Ég mun láta hann sjá er ég eyði óvinum hans og þurrka út hatursmenn hans.
25 Ég mun stöðugt vernda hann og blessa og umvefja hann elsku minni. Mín vegna mun hann verða mikill. 26 Ríki hans mun ná frá Miðjarðarhafi til Evfratfljóts. 27 Hann mun segja við mig: „Þú ert faðir minn, Guð minn, klettur hjálpræðis míns.“
28 Ég mun líta á hann sem frumgetinn son minn og gera hann fremstan meðal konunga jarðarinnar. 29 Ég mun elska hann að eilífu og vera honum góður. Ég mun halda sáttmála minn við hann að eilífu. 30 Hann mun aldrei skorta erfingja og hásæti hans mun standa um eilífð eins og himinninn. 31-33 Ef afkomendur hans hafna lögmáli mínu og óhlýðnast mér, þá mun ég hegna þeim, 34 en aldrei mun ég þó hætta að miskunna þeim, né bregðast loforði mínu. 35 Nei, sáttmála minn mun ég alls ekki rjúfa. Ekkert orða minna tek ég aftur. 36-37  Ég hef heitið Davíð því (og hinn heilagi Guð talar sannleika) að konungsætt hans mun vara um aldir alda, já rétt eins og sólin! 38 Konungdómur hans skal standa að eilífu eins og tunglið, – trúfasta vitnið á himninum!“
39 En, – hvers vegna hefur þú þá útskúfað mér?! Hafnað þeim sem þú valdir til konungs? 40 Hefur þú rofið sáttmálann við hann? Þú sem kastaðir kórónu hans í skítinn! 41 Múra hans hefur þú brotið og rifið niður varnarvirkin. 42 Allir vegfarendur ræna hann. Hann er til háðungar nágrönnum sínum. 43 Þú magnaðir óvini hans gegn honum, og nú kætast þeir! 44 Þú slóst sverð hans til jarðar og neitaðir honum um hjálp í bardaganum. 45 Þú hefur bundið enda á vegsemd hans og hrint hásæti hans um koll. 46 Hann lítur út sem öldungur þótt ungur sé, og það er af þínum völdum. Þú hefur hulið hann skömm.
47 Ó, Drottinn, hve lengi á þetta ástand að vara? Ætlar þú að fela þig fyrir mér að eilífu? Hve lengi á reiði þín að brenna?
48 Mundu hve mannsævin er stutt og að verk okkar flestra eru hégómleg og smá. 49 Enginn maður lifir endalaust. Öll deyjum við að lokum. Og hver getur stigið upp úr gröf sinni?
50 Drottinn, hvar er nú kærleikur þinn til mín? Hvar er gæskan sem þú lofaðir Davíð með eiði? 51 Veistu það, Drottinn, að öll þjóðin hæðist að mér! 52 Óvinir þínir spotta mig, manninn sem þú útvaldir til konungs.
53 En þrátt fyrir allt og allt, sé Drottinn lofaður um eilífð! Amen, amen.