9
1-2  Drottinn, ég vil lofa þig af öllu hjarta og segja öllum frá þínum dásamlegu verkum! Ég vil fagna, já, kætast þín vegna! Ég vil lofsyngja þér, Drottinn Guð, þú ert öllum guðum æðri.
Óvinir mínir hörfuðu undan, já, hrösuðu og fórust fyrir augliti þínu. Þú hefur látið mig ná rétti mínum, ábyrgst verk mín og sagt frá hásæti þínu að þau séu góð. Þú hefur ávítað þjóðirnar og eytt illvirkjunum, þurrkað út nöfn þeirra að eilífu.
Þið, óvinir mínir, eruð búnir að vera, og eigið ykkur ekki viðreisnar von. Drottinn mun eyða borgum ykkar og minning þeirra mun gleymast.
8-9  En Drottinn lifir að eilífu. Hann situr í hásæti sínu, sker úr málum þjóðanna og dæmir þær með réttvísi. 10 Allir kúgaðir komi til hans. Hann er skjól þeirra og athvarf á neyðarstundu. 11 Allir þeir sem þekkja miskunn þína, Drottinn, treysta á hjálp þína. Þú hefur aldrei yfirgefið þá sem treysta þér.
12 Lofsyngið Guði, honum sem býr í Jerúsalem! Víðfrægið dáðir hans um allan heiminn! 13 Hann sem refsar morðingjum. Hann hlustar eftir þeim sem hrópa á réttlæti. Hann daufheyrist ekki við hrópum þeirra sem eru í nauðum staddir.
14 Og nú, Drottinn, miskunna þú mér, þú sérð hvernig óvinir mínir kvelja mig. Hríf mig úr þessari dauðans hættu. 15 Frelsa mig að ég geti lofað þig í allra áheyrn í hliðum Jerúsalem og glaðst yfir því að þú bjargaðir mér.
16 Þjóðirnar falla sjálfar í gryfjuna sem þær hafa grafið öðrum, þær hafa lent í eigin gildru. 17 Drottinn lætur svikráð þeirra koma þeim sjálfum í koll!
18 Illmennin munu hrapa til heljar og eins verða örlög þeirra þjóða sem gleyma Drottni. 19 Því að ekki verður skortur hinna snauðu umborinn endalaust og né hjálp fátæklinganna látin dragast lengur.
20 Ó, Drottinn, rís þú upp, dæm þjóðirnar og refsa þeim. Lát þær ekki hrósa sigri yfir þér! 21 Lát þá skjálfa af ótta og skilja að þeir eru aðeins dauðlegir menn.