93
1-2 Drottinn er konungur! Hann er íklæddur mætti og dýrð. Heimurinn allur er hásæti hans. Ó, Drottinn, þú hefur ríkt frá örófi alda.
3 Brimöldur hafsins boða dýrð þína.
4 En þú ert meiri en voldugar öldur sem brotna við strendur úthafanna!
5 Skipunum þínum fær enginn breytt og heilagleiki er einkenni húss þíns að eilífu.