15
Söngur Móse og lambsins
Nú sá ég aðra mikilfenglega sýn á himnum og átti hún að sýna ókomna atburði. Sjö englum var falið að leiða síðustu sjö plágurnar yfir jörðina og þá loks yrði reiði Guðs fullnægt.
Framundan mér var eitthvað sem líktist glerhafi og var eins og eldur léki um það. Á hafinu stóðu allir þeir, sem unnið höfðu sigur á dýrinu, á líkneski þess og merki þess. Allt þetta fólk hélt á hörpum Guðs 3-4  og það söng ljóð Móse, þjóns Guðs, og söng lambsins:
Mikil og stórkostleg eru verk þín,
Drottinn Guð hinn alvaldi.
Vegir þínir eru réttlátir og sannir,
þú ert konungur aldanna!
Drottinn! Hver er sá sem ekki tignar
og óttast nafn þitt?
Þú einn ert heilagur!
Allar þjóðir munu koma og
tilbiðja þig
því öllum eru augljós
réttlætisverk þín.
Þá leit ég upp og sá að herbergið, sem kallast hið allra helgasta í musterinu, var opið!
Englarnir sjö, sem falið hafði verið að leiða fram plágurnar sjö, komu nú út úr musterinu. Þeir voru klæddir skjannahvítum fötum og höfðu gullbelti um brjóst sér. Verurnar fjórar réttu þeim hverjum um sig eina gullskál. Skálarnar voru fullar af reiði Guðs, hans sem lifir um aldir alda. Reykurinn af dýrð Guðs og mætti hans fyllti musterið, en þangað inn fékk enginn að fara, fyrr en englarnir sjö höfðu lokið við að hella úr reiðiskálunum sjö.