21
Nýr himinn og ný jörð
Eftir þetta sá ég nýjan himin og nýja jörð. Hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og höfin voru ekki lengur til. Þá sá ég, Jóhannes, borgina helgu, hina nýju Jerúsalem! Hún kom niður af himninum frá Guði. Þetta var dýrleg sjón! Borgin var fögur eins og brúður á brúðkaupsdegi.
Þá heyrði ég kallað hárri röddu frá hásætinu: „Sjá! Bústaður Guðs er meðal mannanna. Hann mun búa hjá þeim og þeir munu verða fólk hans – Guð mun sjálfur vera hjá þeim. Hann mun strjúka hvert tár af augum þeirra og dauðinn mun ekki framar verða til. Þar verður engin sorg, enginn grátur og engin kvöl, allt slíkt er horfið og kemur aldrei aftur.“
Þá sagði sá sem í hásætinu sat: „Sjá, ég geri alla hluti nýja!“ Síðan sagði hann við mig: „Nú skaltu skrifa, því að þessi orð eru sönn: Það er fullkomnað! Ég er Alfa og Ómega, upphafið og endirinn. Ég gef þeim ókeypis, sem þyrstur er, lífsins vatn. Þeir sem sigra, munu erfa blessunina og ég mun vera Guð þeirra og þeir munu vera börnin mín. Eldsdíkið sem logar af brennisteini, er staðurinn fyrir bleyður sem snúa við mér bakinu, þá sem eru mér ótrúir, hrakmenni, morðingja, saurlífismenn, þá sem hafa samskipti við illu andana, skurðgoðadýrkendur og alla þá sem iðka lygi – þar er hinn annar dauði.“
Þá kom einn af englunum sjö, sem tæmt höfðu skálarnar með síðustu sjö plágunum, og sagði við mig: „Komdu með mér og ég skal sýna þér brúðina, eiginkonu lambsins.“
Borgin dýrlega
10 Ég sá í sýninni að hann fór með mig upp á hátt fjall og þaðan sá ég borgina dýrlegu, hina heilögu Jerúsalem, koma niður af himni frá Guði. 11 Hún var full af dýrð Guðs og glóði eins og gimsteinn. Það glampaði á hana eins og slípaðan jaspis. 12 Múrarnir voru háir og breiðir og tólf englar gættu hliðanna tólf, sem á þeim voru. Nöfn hinna tólf ættkvísla Ísraels voru rituð á hliðin. 13 Borgin hafði fjórar hliðar og voru þrír inngangar á hverri hlið, en hliðarnar sneru í norður, suður, austur og vestur. 14 Múrarnir höfðu tólf undirstöðusteina og á þá voru rituð nöfn hinna tólf postula lambsins.
15 Engillinn hélt á mælistiku í annarri hendinni og ætlaði að mæla hlið og veggi borgarinnar. 16 Þegar hann hafði lokið því sá hann að borgin var ferhyrnd, hliðarnar voru allar jafnlangar, reyndar var hún líkust teningi því að hæðin sem var 2.400 kílómetrar, var jöfn lengdinni og breiddinni. 17 Síðan mældi hann þykkt veggjanna og komst þá að því að þeir voru 65 metrar í þvermál (engillinn kallaði til mín þessi mál og notaði mælieiningar sem allir þekkja).
18-20 Sjálf var borgin úr skíru og gegnsæju gulli, líkustu gleri. Múrinn var úr jaspis og byggður á tólf lögum undirstöðusteina og var hvert þeirra um sig skreytt þessum gimsteinum: Hið fyrsta jaspis, annað safír, þriðja kalsedón, fjórða smaragð, fimmta sardónix, sjötta sardis, sjöunda krýsólít, áttunda beryl, níunda tópas, tíunda krýsópras, ellefta hýasint og tólfta ametýst.
21 Hliðin tólf voru úr perlum – hvert um sig úr einni perlu. Aðalgatan var úr skíru gegnsæju gulli sem líktist gleri.
22 Musteri sá ég ekkert í borginni, því að Drottinn Guð hinn almáttki og lambið eru tilbeðin um alla borgina. 23 Borgin þarf hvorki á sólarljósi né tunglskini að halda, því að dýrð Guðs og lambsins lýsa hana upp. 24 Ljós hennar mun lýsa þjóðum jarðarinnar og konungar jarðarinnar munu koma og færa henni dýrð sína. 25 Hliðunum er aldrei lokað, þau standa opin allan daginn, því að nótt þekkist þar ekki. 26 Menn munu færa borginni dýrð og vegsemd þjóðanna 27 og ekkert illt mun komast inn í hana – engin illmenni eða lygarar. Þar munu þeir einir verða, sem eiga nöfnin sín innrituð í lífsbók lambsins.