7
Guðs sanni þjónn
Eftir þetta sá ég fjóra engla sem stóðu á fjórum skautum jarðarinnar og héldu vindunum fjórum í skefjum, svo að þeir gátu ekki blásið. Lauf trjánna bærðust ekki og hafið varð spegilslétt. Þá sá ég annan engil, hann kom úr austurátt og hélt á innsigli hins lifandi Guðs. Hann kallaði til englanna fjögurra sem fengið höfðu vald til að granda jörðinni og hafinu, og sagði: „Bíðið! Skaðið hvorki jörðina, hafið né heldur trén. Gerið ekkert að svo stöddu, ekki fyrr en við höfum sett innsigli Guðs á enni þeirra sem honum þjóna.“
4-8 Hve margir fengu þetta innsigli? Það fékk ég að vita, þeir voru 144.000. Hinir innsigluðu voru af öllum tólf ættkvíslum Ísraels eins og hér segir: Júda 12.000, Rúben 12.000, Gað 12.000, Asser 12.000, Naftalí 12.000, Manasse 12.000, Símeon 12.000, Leví 12.000, Íssakar 12.000, Sebúlon 12.000, Jósef 12.000 og Benjamín 12.000.
Eftir þetta sá ég mikinn mannfjölda, sem enginn gat talið. Þetta fólk var af öllum þjóðum og tungum og stóð fyrir framan hásætið, frammi fyrir lambinu. Það var í hvítum skikkjum og hélt á pálmagreinum. 10 Og það hrópaði hárri röddu: „Hjálpræðið kemur frá Guði, sem situr í hásætinu, og lambinu!“
11 Þá söfnuðust allir englarnir umhverfis hásætið, öldungana og verurnar fjórar og féllu fram á ásjónur sínar, frammi fyrir hásætinu og tilbáðu Guð. 12 „Amen!“ sögðu þeir. „Lofgjörðin, dýrðin, viskan, þakkargjörðin, heiðurinn, krafturinn og mátturinn sé Guði okkar um alla eilífð. Amen!“
13 Þá spurði mig einn af öldungunum tuttugu og fjórum: „Veistu hverjir þetta eru, þessir hvítklæddu, og hvaðan þeir koma?“
14 „Nei, herra,“ svaraði ég, „segðu mér það.“ „Þetta eru þeir sem komnir eru úr þrengingunni miklu,“ sagði hann. „Þeir þvoðu skikkjur sínar skjannahvítar í blóði lambsins og 15 þess vegna eru þeir hér frammi fyrir hásæti Guðs og þjóna honum dag og nótt í musterinu. Sá sem situr í hásætinu mun gæta þeirra. 16 Þá mun aldrei framar hungra né heldur þyrsta og sólarhitinn mun ekki brenna þá, 17 því að lambið, sem stendur frammi fyrir hásætinu, mun fæða þá og vera hirðir þeirra. Það mun leiða þá að lind lífsvatnsins og Guð mun þerra tárin af augum þeirra.“