4
Um villukenningar
Heilagur andi segir skýrt og greinilega að á síðustu tímum muni sumir snúa baki við Kristi, hlýða lyga-öndum og fylgja kenningum sem komnar eru frá Satani. Þessir kennimenn munu ljúga án þess að blikna, því þeir hafa svæft samvisku sína. Þeir munu banna fólki að ganga í hjónaband og segja það rangt að borða kjöt, þótt hvort tveggja sé frá Guði. Þetta tvennt er vissulega ætlað trúuðu fólki sem þekkir sannleikann. Það njóti þessara gjafa og þakki Guði. Allt sem Guð hefur skapað er gott og við getum neytt þess með gleði eftir að hafa þakkað Guði. Það helgast af Guðs orði og bæn.
Ef þú brýnir þetta fyrir hinum trúuðu, ert þú góður þjónn Jesú Krists, sem lifir í trú á hina réttu kenningu, sem þú hefur fylgt.
Eyddu ekki tíma í deilur um fánýt efni eða kjánalegar goðsagnir og helgisögur. Kappkostaðu miklu fremur að viðhalda andlegri hæfni þinni. Líkamsþjálfun getur að vísu verið gagnleg en iðkun trúarlífsins er miklu þýðingarmeiri og er þér til hressingar á allan hátt. Leggðu því stund á andlega þjálfun og æfðu þig í því að verða heilsteyptari í trúnni. Það er nytsamlegt, bæði nú í þessu lífi og einnig í hinu komandi. 9-10  Þetta er satt og eftir þessu ættu allir að fara. Við leggjum hart að okkur og þolum miklar raunir í viðleitninni til að fá fólk til að trúa þessu, því við höfum sett von okkar á hinn lifandi Guð, sem dó fyrir alla, en þó sérstaklega þá sem tekið hafa við hjálpræði hans.
11 Þetta skaltu kenna og gættu þess vel að allir taki námið alvarlega. 12 Láttu engan líta niður á þig, vegna þess hve ungur þú ert, en vertu fyrirmynd trúaðra og farðu sjálfur eftir því sem þú kennir og þá munu þeir einnig gera það. Vertu þeim líka til fyrirmyndar í kærleika, trú og hreinleika. 13 Ég bið þig að lesa og útskýra orð Guðs af kostgæfni fyrir söfnuðinum og boða það þangað til ég kem.
Notaðu hæfileikana sem Guð hefur gefið þér
14 Gættu þess vel að nota hæfileikana sem Guð gaf þér, þegar leiðtogar safnaðarins lögðu hendur yfir þig og fluttu þér spádóm frá Guði. 15 Notaðu nú þessa hæfileika og varpaðu þér út í starfið, svo að allir geti séð hversu þér hefur farið fram. 16 Hafðu gát á sjálfum þér og því sem þú kennir. Haltu fast við sannleikann og þá mun Guð bæði gera þig hólpinn og áheyrendur þína.