2
Lifðu í krafti Krists
Tímóteus, sonur minn, lifðu í krafti Jesú Krists! Þitt hlutverk er að fræða aðra um það, sem þú heyrðir mig tala í áheyrn margra votta. Þann sannleika skaltu kenna mönnum sem hægt er að treysta, svo að þeir geti kennt öðrum. Vertu fús að þjást eins og sannur hermaður Jesú Krists, því að það ber okkur að gera. Og sem hermaður Krists skaltu ekki binda þig við nein aukastörf, því hvaða hermaður heldur þú að stundi aukavinnu annars staðar? Sá kæmi varla að miklum notum! Sá sem stundar íþróttir, verður að fara eftir settum reglum til að geta sigrað, annars verður hann dæmdur úr leik og á enga von um verðlaun. Og bóndinn – hann leggur hart að sér til að ná góðri uppskeru. Eins gerum við. Hugleiddu þessi þrjú dæmi – hermanninn, íþróttamanninn og bóndann, og Drottinn hjálpi þér að skilja hvernig þau geta átt við þig.
Umfram allt, mundu eftir Jesú Kristi. Hann fæddist sem maður af ætt Davíðs konungs og sigraði dauðann með upprisu sinni. Þennan mikla sannleika hef ég boðað. Þess vegna hef ég verið ofsóttur og setið í fangelsi eins og afbrotamaður. En þótt ég sé fjötraður, þá verður orð Guðs ekki fjötrað! 10 Ég er fús að þjást, ef það verður til þess að þeir, sem Guð hefur útvalið, öðlist hjálpræðið og dýrð Jesú Krists.
11 Ég veit að það er satt, að ef við deyjum fyrir Krist, þá fáum við að lifa með honum á himnum. 12 Ef við stöndum stöðugir í trúnni og þjónustunni, þá munum við fá að ríkja með honum. En ef við snúumst gegn Kristi og afneitum honum, þá hlýtur hann einnig að hafna okkur. 13 En skorti okkur þrek og sé trú okkar alveg á þrotum, þá er hann samt trúr og hjálpar, því hann getur ekki afneitað okkur – við erum hluti af honum sjálfum. Loforð hans munu standa!
Forðastu einskisnýtar rökræður
14 Þennan sannleika skaltu minna hina trúuðu á og bjóða þeim í nafni Drottins að deila ekki um einskisverða hluti. Slíkar rökræður rugla menn bara í ríminu. Þær eru algjörlega gagnslausar og meira að segja skaðlegar. 15 Starfaðu af trúmennsku svo að Guð geti gefið þér góðan vitnisburð og þú þurfir ekki að blygðast þín þegar Guð prófar verk þín. Þú verður að þekkja orð hans, vita hvað það segir og hvað það þýðir. 16 Forðastu heimskulegar rökræður sem leiða af sér synd og illindi manna á milli. 17 Sum orð valda sári er seint grær. Dæmi um menn sem ánægju hafa af slíku þrasi eru Hýmeneus og Fíletus. 18 Þeir hafa villst af vegi sannleikans og segja upprisu dáinna þegar um garð gengna og rugla fólk þannig í trúnni.
19 En sannleikur Guðs er óhagganlegur og honum getur enginn breytt. Þar er skráð: „Drottinn þekkir sína,“ og „sá sem telur sig kristinn, forðist ranglæti.“
20 Á ríkum heimilum eru sum ílát hver úr gulli og silfri, önnur úr tré og leir. Þau fyrrnefndu eru notuð fyrir gesti, en hin í eldhúsinu eða undir úrgang. 21 Forðist þú syndina, líkist þú gullkeri – því besta sem til er á heimilinu – og þá mun sjálfur Kristur nota þig til þess sem göfugt er.
22 Haltu þig frá öllu sem vekur illar hugsanir, eins og oft sækja á unga menn, en kepptu eftir því sem gott er. Reyndu að vaxa í trú og kærleika og sækja eftir félagsskap þeirra sem elska Drottin og eru hjartahreinir.
23 Og enn segi ég: Láttu ekki leiða þig út í heimskulegar þrætur, sem aðeins valda ófriði og illdeilum. 24 Þjónar Drottins mega ekki vera þrasgjarnir, heldur ljúfir og uppfræða fólk með þolinmæði. 25 Vertu hógvær þegar þú leiðbeinir þeim sem ekki þekkja sannleikann, og mótmæla þér. Þess meiri líkur eru á að þeir snúi sér frá villu sinni með Guðs hjálp og trúi sannleikanum. 26 Þannig gætu þeir áttað sig og losnað úr gildru Satans. Hann reynir sífellt að fjötra menn í þrældóm syndarinnar og fá þá til að þjóna sér.