Efesusbréfið
1
Páll, sem Guð valdi til að vera sendiboði Jesú Krists, sendir kveðju ykkur öllum sem kristin eruð í Efesus. Náð og friður sé með ykkur frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi. Lofaður sé Guð, faðir Drottins Jesú Krists, sem frá himnum hefur blessað okkur ríkulega, vegna þess að við tilheyrum Jesú.
Guð kunngerir fyrirætlun sína
Áður en heimurinn varð til, ákvað hann að við skyldum verða börnin hans, vegna trúar okkar á Jesú Krist. Þá ákvað hann að gera okkur heilög og lýtalaus, okkur, sem stöndum frammi fyrir honum umvafin kærleika hans. Allt frá upphafi var það óumbreytanleg ákvörðun hans að ættleiða okkur inn í fjölskyldu sína og það gerði hann með því að senda Jesú Krist og láta hann deyja fyrir okkur. Þetta var hans eigin ósk.
Lofaður sé Guð vegna undursamlegrar miskunnar sinnar við okkur og vegna kærleikans sem hann hefur sýnt okkur í sínum elskaða syni. Kærleikur hans er svo takmarkalaus að hann tók burt allar syndir okkar, með dauða sonar síns, og frelsaði okkur. Hann hefur látið blessun sína streyma ríkulega yfir okkur og veitt okkur þekkingu og skilning á fyrirætlunum sínum og leyndardómum.
Í upphafi tók Guð þá ákvörðun, af miskunn sinni, að senda Krist, og nú hefur hann upplýst hvers vegna. 10 Fyrirætlun hans var þessi: í fyllingu tímans ætlar hann að safna okkur saman úr öllum áttum – hvort sem við þá verðum á himni eða jörðu – svo að við getum verið með Kristi að eilífu. 11 Vegna þess sem Kristur hefur gert, erum við gjöf til Guðs, sem gleður hann, því að í upphafi valdi hann okkur til að tilheyra sér. Allt mun þetta fara eins og Guð ákvað í upphafi. 12 Því skulum við, sem höfum tekið trú á Krist, lofa og vegsama Guð og gefa honum dýrðina vegna þess sem hann hefur gert fyrir okkur.
13 Eftir að þið heyrðuð gleðiboðskapinn um hvernig hægt væri að frelsast og trúðuð Kristi, merkti Guð ykkur sem sína eign, með því að gefa ykkur heilagan anda. En því hafði Guð fyrir löngu heitið öllum þeim sem kristnir yrðu. 14 Það að heilagur andi býr í okkur, er trygging þess að Guð muni veita okkur allt það sem hann hefur lofað. Það er einnig tákn þess að Guð hafi þegar keypt okkur sér til eignar og að hann ábyrgist að taka okkur til sín. Þetta er enn ein ástæða þess að við eigum að vegsama Guð.
15 Eftir að ég heyrði um það hvernig þið treystið Jesú í öllu og um kærleika ykkar til allra kristinna manna 16-17  hef ég ekki látið af að þakka Guði fyrir ykkur. Ég bið Guð þess stöðugt að hann, faðir Drottins Jesú Krists, gefi ykkur visku, svo að þið skiljið fullkomlega hver Kristur er og hvað hann hefur gert fyrir ykkur. 18 Ég bið þess að hugur ykkar opnist fyrir ljósi hans, svo að þið getið skilið þá framtíð sem hann vill gefa ykkur og hefur kallað ykkur til. Ég vil að þið gerið ykkur grein fyrir þeim auðæfum sem við höfum eignast, við að taka á móti Kristi Jesú. 19 Svo bið ég þess að skilningur ykkar opnist, svo að þið sjáið hve óendanlega mikill máttur hans er, þeim til hjálpar, sem á hann trúa. Þetta er sami kröftugi mátturinn 20 og reisti Krist upp frá dauðum og leiddi hann til heiðurssætis hjá Guði á himnum. 21 Vald hans er meira en nokkurs konungs, foringja, einræðisherra eða leiðtoga, hvort heldur þessa heims eða annars. 22 Guð hefur lagt allt að fótum hans og gert hann höfuð kirkjunnar. 23 Kirkjan er líkami hans og verkfæri – hans, sem er höfundur og gjafari alls á himni og jörðu.