6
Kæru trúsystkin, ef kristinn maður fellur fyrir einhverri synd, þá ber ykkur sem guðrækin eruð, að leiða hann aftur á réttan veg og það með hógværð og auðmýkt. Minnist þess jafnframt að næst gæti eitthvert ykkar orðið fyrir hinu sama. Takist á við vandamál og erfiðleika hvers annars og hlýðið þannig boði Drottins. Finnist einhverjum hann of mikill maður til að auðmýkja sig á þennan hátt, þá blekkir hann sjálfan sig, því að sjálfur er hann ekkert. Hver um sig gæti þess að gera sitt besta og þá getur hann glaðst hið innra yfir vel unnu verki og þarf ekki að bera sig saman við aðra. Hver og einn verður að berjast við eigin veikleika og vandamál, því að ekkert okkar er fullkomið.
Þeim sem fræðslu njóta í guðsorði, ber að veita kennurum sínum fjárhagslegan stuðning.
Missið ekki kjarkinn
Forðist alla sýndarmennsku fyrir Guði, því þið munuð uppskera eins og þið sáið. Sá sem vill fullnægja sínum illu hvötum, sáir illgresi í hjarta sitt og uppsker andlega niðurlægingu og dauða. Ef hann hins vegar sáir hinu góða sæði Guðs anda, þá uppsker hann eilíft líf sem andinn gefur honum. Þreytumst ekki á að gera hið góða, því að á sínum tíma munum við uppskera blessun, ef við gefumst ekki upp. 10 Notum því hvert tækifæri til að sýna öðrum vináttu og þá sérstaklega trúsystkinum okkar.
11 Niðurlag bréfsins ætla ég að skrifa með eigin hendi. Sjáið hvað ég skrifa stóra stafi! 12 Þessir fræðarar ykkar, sem leggja hart að ykkur að láta umskerast, hafa aðeins eitt í huga. Þeir vilja ná vinsældum, svo þeir komist hjá ofsóknunum sem þeir annars ættu í vændum, ef þeir segðu að verk Krists á krossinum nægði til hjálpræðis. 13 Þessir menn, sem fylgja umskurninni, reyna ekki einu sinni að halda lög Gyðinga að öðru leyti. Þeir vilja að þið látið umskerast, svo að þeir geti stært sig af ykkur sem sínum lærisveinum.
14 Guð forði mér frá því að hrósa mér af nokkru öðru en krossi Drottins Jesú Krists. Langt er nú síðan kross þessi deyddi alla löngun mína í lystisemdir heimsins og áhugi heimsins á mér er einnig löngu horfinn. 15 Það skiptir ekki lengur máli hvort við erum umskornir eða ekki. Það sem máli skiptir er hvort við erum orðin ný sköpun – nýjar manneskjur.
16 Miskunn og friður Guðs sé með ykkur öllum sem lifið eftir reglu þessari, öllum þeim sem Guði tilheyra, hvar sem þeir eru. 17 Ég bið ykkur að mæða mig ekki framar með þessum deilum, því að líkami minn ber ör eftir svipuhögg og sár, sem óvinir Jesú hafa veitt mér.
18 Kæru vinir, náð Drottins Jesú Krists sé með ykkur öllum. Amen.
Páll.