2
Kristur dó fyrir alla menn
Munum þennan sannleika sem við höfum heyrt, svo að við villumst ekki burt frá honum. Við vitum að boðskapur englanna reyndist sannur og við vitum líka að fólk hefur aldrei komist hjá hegningu, hafi það óhlýðnast honum. Hvers vegna höldum við þá að við getum komist upp með kæruleysi, varðandi þetta mikla hjálpræði, sem sjálfur Drottinn Jesús flutti fyrst og þeir síðan, sem heyrðu hann tala?
Frá byrjun hefur Guð sýnt sannleiksgildi boðskaparins með táknum, undrun og margvíslegum kraftaverkum. Einnig hefur hann gefið þeim sem trúa sérstakar gjafir heilags anda, og slíkum gjöfum hefur hann úthlutað sérhverju okkar.
Hinn komandi heimur, sem við höfum talað um, mun ekki verða undir stjórn engla. Það sést í Sálmunum. Þar spyr Davíð Guð: „Hvers virði er maðurinn, fyrst þú lætur þér svo annt um hann, sem raun ber vitni? Hver er þessi mannssonur sem þú metur svo mikils? Þótt þú gerðir hann englum lægri skamma stund, hefur þú nú krýnt hann heiðri og dýrð og sett hann yfir allt sem til er, og þar er ekkert undanskilið.“
Enn höfum við ekki orðið vitni að öllu þessu, en þó sjáum við Jesú – hann sem um stund var gerður englunum lægri – krýndan heiðri og dýrð af hendi Guðs, vegna þess að hann leið þjáningar dauðans okkar vegna. Vegna hins mikla kærleika Guðs, gekk Jesús í dauðann fyrir alla menn á þessari jörð. 10 Það var rétt af Guði, sem skapað hefur alla hluti sér til dýrðar, að láta Jesú þjást, því að á þann hátt fékk hann leitt mikinn fjölda af fólki sínu til himna – þá sem honum treysta. Vegna þjáninganna varð Jesús fullkominn leiðtogi, fær um að leiða fólkið til hjálpræðis.
11 Nú eigum við, sem Jesús hefur helgað, sama föður og hann og því blygðast Jesús sín ekki heldur fyrir að kalla okkur bræður og systur. 12 Hann segir í Sálmunum: „Ég vil tala við systkini mín um Guð, föður minn, og við munum lofsyngja hann sameiginlega.“ 13 Í annað sinn sagði hann: „Ég mun halda áfram að treysta Guði.“ Og í enn eitt skipti sagði hann: „Sjá, hér er ég og börnin, sem Guð gaf mér.“
14 Fyrst við, börn Guðs, erum mannlegar verur holdi klæddar, þá varð hann einnig hold og blóð er hann fæddist sem maður, því aðeins á þann hátt gat hann dáið og með dauða sínum brotið vald djöfulsins, sem hafði vald dauðans. 15 Þetta var eina leið hans til að frelsa þá, sem hafa lifað allt sitt líf í stöðugum ótta við dauðann.
16 Við vitum öll að hann kom ekki sem engill, heldur sem maður – sem Gyðingur. 17 Það var nauðsynlegt að Jesús yrði líkur okkur bræðrum sínum, til þess að hann gæti orðið okkur trúr og miskunnsamur æðsti prestur, frammi fyrir Guði, prestur, sem bæði væri okkur náðugur og Guði trúr í því að friðþægja fyrir syndir mannanna. 18 Sjálfur stóðst hann allar þjáningar og freistingar. Hann þekkir vel líðan okkar þegar við þjáumst og verðum fyrir freistingum og þess vegna er hann fær um að hjálpa þeim, sem er freistað.