3
Kristnir menn eru bústaður Guðs
Kæru vinir, þið sem Guð hefur kallað og helgað sér, horfið á Jesú, sendiboða Guðs og æðsta prest trúar okkar.
Jesús var trúr Guði, sem hafði skipað hann æðsta prest, á sama hátt og Móse þjónaði af trúmennsku í húsi Guðs. En Jesús hlaut enn meiri dýrð en Móse, rétt eins og sá sem byggir fallegt hús hlýtur meiri heiður en húsið sjálft. Þeir eru margir sem byggt geta hús, en aðeins einn, sem allt hefur skapað, og það er Guð.
Satt er það að Móse kom miklu góðu til leiðar, þann tíma sem hann starfaði í húsi Guðs, en hann var aðeins þjónn. Starf hans var einkum að gefa hugmynd um og lýsa því, sem síðar yrði. Kristur, sonur Guðs, ber hins vegar ábyrgð á öllu húsi Guðs. Við kristnir menn erum bústaður Guðs og Guð býr í okkur, ef við varðveitum djörfung okkar, gleði og trúna á Drottin allt til enda.
7-8  Fyrst Kristur er svo miklu æðri, þá hvetur heilagur andi okkur til að hlusta á hann í dag og taka eftir því sem hann segir, en ekki loka hjörtum okkar fyrir honum, eins og Ísraelsþjóðin gerði. Þeir brynjuðu sig gegn kærleika hans og mögluðu gegn honum í eyðimörkinni, einmitt þegar hann var að reyna þá. En þolinmæði Guðs við þá brást ekki í fjörutíu ár, enda þótt á hana reyndi til hins ýtrasta, og hann hélt áfram að vinna hin miklu kraftaverk sín á meðal þeirra. 10 „En,“ segir Guð, „ég var þeim reiður, því þeir voru alltaf með hugann við eitthvað annað en mig og komu aldrei auga á leiðina sem ég ætlaði þeim að fara.“
11 Þegar reiði Guðs gegn þeim hafði náð hámarki, þá hét hann því að þeir skyldu aldrei ná að hvílast í landinu, sem hann hafði ætlað þeim.
Forhert hjörtu
12 Gætið þess því, kæru vinir, að hjörtu ykkar séu ekki líka vond og vantrúuð, og leiði ykkur burt frá lifandi Guði! 13 Minnið hvert annað daglega á þessa hluti meðan tími gefst, svo að ekkert ykkar herði sig gegn Guði og blindist af táli syndarinnar. 14 Ef við reynumst trú allt til enda og treystum Guði eins og í byrjun, þegar við tókum á móti Kristi, munum við eignast hlutdeild í öllu sem Krists er.
15 Nú er einmitt rétti tíminn til að minna okkur á þessa aðvörun: „Ef þið heyrið rödd Guðs tala til ykkar í dag, verið þá ekki þrjósk og óhlýðin við hann eins og Ísraelsþjóðin, þegar hún reis gegn honum í eyðimörkinni.“
16 Hvaða menn voru þetta, sem heyrðu Guð tala til sín, en snerust gegn honum? Það voru þeir, sem yfirgáfu Egyptaland undir forystu Móse. 17 Og hverjir reittu Guð til reiði í fjörutíu ár? Þetta sama fólk, sem þannig syndgaði, og því dó það í eyðimörkinni. 18 En hverjir fengu orð frá Guði um að þeir skyldu aldrei komast inn í landið, sem hann hafði heitið þjóð sinni? Það voru allir þeir sem höfðu óhlýðnast honum. 19 En hvers vegna komust þeir ekki inn í landið? Vegna þess að þeir trúðu honum ekki.