13
Jesús lítur til framtíðarinnar
Þegar Jesús gekk út úr musterinu þennan dag, sagði einn lærisveinanna við hann: „Meistari, þetta eru fallegar byggingar! Sjáðu til dæmis myndirnar þarna á veggjunum.“
„Já,“ svaraði Jesús, „en hér verður samt ekki skilinn eftir steinn yfir steini, ekkert nema rústir einar.“
3-4  Og þegar hann sat í hlíð Olíufjallsins, hinum megin dalsins gegnt musterinu, komu Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés til hans og spurðu: „Hvenær mun þetta verða? Mun eitthvert tákn birtast áður, til viðvörunar?“
Jesús svaraði: „Látið engan leiða ykkur afvega, því margir munu koma og segjast vera Kristur, og þeir munu leiða ógæfu yfir marga. Óttist ekki þótt styrjaldir geisi, það er óhjákvæmilegt, en endirinn er ekki þar með kominn.
Þjóðir og ríki munu ráðast hvert gegn öðru, og víða munu verða jarðskjálftar og hungursneyð. Þetta verða fyrirboðar hörmunganna sem framundan eru. Gætið ykkar, því að þið verðið í mikilli hættu! Þið verðið dregnir fyrir rétt, þið verðið barðir í samkomuhúsunum og ákærðir frammi fyrir landstjórum og konungum, vegna þess að þið fylgið mér, en þá fáið þið líka tækifæri til að vitna um mig. 10 Áður en endalokin koma, verða allar þjóðir að hafa fengið að heyra fagnaðarerindið. 11 En þegar þið verið yfirheyrðir sem fangar, hafið þá ekki áhyggjur af því hvernig þið eigið að verja ykkur – segið það sem Guð minnir ykkur á. Það verða ekki þið sem talið, heldur heilagur andi!
12 Bræður munu svíkja hver annan í dauðann, og sama munu feður gera við sín eigin börn og börnin við foreldrana. 13 Allir munu hata ykkur af því að þið tilheyrið mér, en þeir sem standa stöðugir allt til enda og afneita mér ekki, munu bjargast.
14 Þegar þið sjáið viðurstyggð eyðingarinnar í musterinu – lesandi, taktu eftir því – þá flýi þeir sem eru í Júdeu til fjalla, 15-16  og flýtið ykkur! Sértu staddur við þakdyrnar, farðu þá ekki inn í húsið, og sértu úti á akri, farðu þá ekki heim eftir peningum þínum eða fötum.
17 Þær, sem eiga von á barni, verða illa settar á þeim dögum og einnig þær, sem þá hafa börn á brjósti. 18 Biðjið að flótti ykkar verði ekki að vetri til. 19 Þessir tímar verða svo miklir hörmungatímar, að þvílíkt hefur aldrei fyrr orðið frá upphafi sköpunarinnar og mun aldrei verða. 20 Ef Drottinn stytti ekki þennan ógæfutíma, kæmist engin sála af í öllum heiminum, en vegna þeirra, sem hann hefur útvalið, mun hann stytta hann.
21 Ef einhver segir við ykkur: „Þetta er Kristur,“ eða „þarna er hann,“ þá gefið því engan gaum. 22 Margir falskristar og falsspámenn munu koma og gera stórkostleg kraftaverk til þess, ef mögulegt er, að villa um fyrir börnum Guðs.
23 Varið ykkur! Nú hef ég sagt ykkur það!
24 Eftir þessar þrengingar mun sólin myrkvast og tunglið hætta að skína, 25 stjörnurnar munu hrapa og himnarnir nötra.
26 Þá mun allt mannkynið sjá mig, Krist, koma í skýjunum með mætti og mikilli dýrð. 27 Og ég mun senda englana út um allan heim til að safna saman mínum útvöldu – út til ystu endimarka heimsins.
28 Þið getið lært af fíkjutrénu: Þið vitið að vorið er komið, þegar brumið er orðið mjúkt og laufin fara að springa út. 29 Þegar þið sjáið þessa atburði gerast, sem ég nú hef lýst, þá getið þið reitt ykkur á að endurkoma mín er fyrir dyrum.
30 Þetta eru táknin, sem gefa þessari kynslóð til kynna að endirinn sé kominn. 31 Himinn og jörð munu hverfa en orð mín standa að eilífu. 32 En daginn og stundina er þetta gerist, veit enginn, hvorki englarnir né ég, heldur aðeins faðirinn einn. 33 Og fyrst þið vitið ekki stundina, verið þá allsgáðir. Vakið og biðjið og verið viðbúnir komu minni.
34 Endurkomu minni má líkja við mann, sem ferðaðist til annars lands. Hann sagði starfsmönnum sínum hvað hver og einn ætti að gera meðan hann væri í burtu og bað dyravörðinn að vera vel á verði meðan hann biði komu sinnar.
35-37 Gætið að! Þið vitið ekki hvenær mín er von, hvort það verður að kvöldi, um miðnætti, undir morgun eða árdegis. Látið mig ekki koma að ykkur sofandi, heldur verið vakandi þegar ég kem! Það sem ég segi ykkur, segi ég öllum: Vakið!“