7
Trúarleiðtogarnir leggja spurningu fyrir Jesú
Dag nokkurn komu trúarleiðtogarnir frá Jerúsalem til að fylgjast með Jesú. Þeir tóku eftir því að sumir lærisveina hans skeyttu engu reglum þeim sem farið var eftir áður en menn neyttu matar. (Gyðingar, og sérstaklega farísear, mötuðust aldrei nema þeir hefðu, samkvæmt sérstökum trúarsiðum, þvegið sér um hendurnar. Þegar þeir komu heim af markaðnum, urðu þeir alltaf að þvo sér á þennan hátt áður en þeir snertu matinn. Þetta var aðeins ein af mörgum reglum þeirra og lögum sem þeir hafa fylgt öldum saman og gera enn. Ein reglan er til dæmis sérstakur trúarlegur þvottur á pottum, pönnum og diskum.)
Trúarleiðtogarnir spurðu því Jesú. „Hvers vegna hlýða lærisveinar þínir ekki aldagömlum venjum okkar? Þeir borða án þess að þvo sér, en það er brot á reglunum.“
6-7  „Þið hræsnarar!“ svaraði Jesús. „Jesaja spámaður lýsti ykkur vel þegar hann sagði: „Fólk þetta talar fagurlega um Drottin, en það elskar hann ekki. Tilbeiðsla þess er einskis virði, því það heldur því fram að það sé skipun Guðs að fólk hlýði öllum þeirra ómerkilegu reglum.“ Jesaja hafði sannarlega rétt fyrir sér! Þið virðið að vettugi skýr boð Guðs en takið í staðinn upp ykkar eigin siðvenjur. Með þessu hafnið þið boðum Guðs og traðkið á þeim, til þess eins að gera eins og ykkur langar.
10 Móse sagði til dæmis: „Heiðraðu föður þinn og móður.“ Hann sagði einnig að hver sá er formælti foreldrum sínum væri dauðasekur. 11 Þið segið hins vegar að í lagi sé að menn sinni ekki þörfum foreldra sinna og segi við þau: „Mér þykir leitt að geta ekki hjálpað ykkur, en ég hef gefið Guði það sem ég annars hefði gefið ykkur.“ 12-13  Þannig brjótið þið boðorð Guðs til að geta hlýtt ykkar eigin mannaboðorðum. Þetta er aðeins eitt dæmi, en ég gæti nefnt mörg önnur.“
14 Síðan kallaði Jesús á fólkið og sagði: „Takið eftir, og reynið að skilja. 15-16  Sálir ykkar bíða ekki tjón af því sem þið borðið, heldur hinu sem þið hugsið og segið.“
17 Að því búnu fór hann í húsið til að fá næði fyrir fólkinu. Þá spurðu lærisveinar hans hvað hann hefði átt við með þessum orðum. 18 „Eruð þið líka svona skilningslausir?“ spurði hann. „Getið þið ekki skilið að það sem þið borðið skaðar ekki sál ykkar, 19 því maturinn kemst ekki í snertingu við sálina, hann fer aðeins í gegnum meltingarfærin.“ (Með þessu átti hann við að leyfilegt væri að neyta hvaða matar sem er.)
20 Síðan bætti hann við: „Það er hugarfarið sem spillir manninum. 21 Frá hjarta hans koma illar hugsanir, girnd, þjófnaður, morð, hórdómur, 22 eftirsókn eftir eigum annarra, illmennska, sviksemi, saurlifnaður, öfund, baktal, hroki og alls konar heimska. 23 Allt þetta illa kemur innan frá og spillir og óhreinkar manninn í augum Guðs?“
„Allt sem hann gerir er gott“
24 Eftir þetta fór Jesús frá Galíleu og norður til héraðanna umhverfis Týrus og Sídon. Hann reyndi að fara huldu höfði en án árangurs. Fréttirnar um komu hans bárust um allt eins og venjulega.
25 Kona ein sem þarna var kom til hans. Hún átti dóttur sem haldin var illum anda. Hún hafði heyrt um Jesú og því kom hún nú, kraup við fætur hans, 26 og grátbað hann að losa dótturina við illa andann. (Konan var frá sýrlensku Fönikíu og því heiðingi í augum Gyðinga.)
27 Jesús svaraði henni og sagði: „Fyrst verð ég að hjálpa samlöndum mínum – Gyðingunum. Það er ekki rétt að taka matinn frá börnunum og kasta honum til hvolpanna.“
28 „Rétt er það, herra, en hvolparnir týna þó upp molana sem börnin leifa,“ sagði hún.
29 „Rétt,“ sagði hann, „þú svaraðir vel – svo vel, að nú hef ég læknað dóttur þína! Farðu nú heim – illi andinn er farinn út af henni.“
30 Þegar konan kom heim lá litla stúlkan róleg í rúminu; illi andinn var farinn.
31 Frá Týrus fór Jesús til Sídonar og síðan til Dekapólis (þorpanna tíu) við Galíleuvatnið. 32 Þá var leiddur til hans maður sem bæði var heyrnarlaus og mállaus. Bað fólkið Jesú að leggja hendur yfir hann og lækna hann.
33 Jesús fór með hann afsíðis, stakk fingrunum í eyru hans og vætti tungu hans með munnvatni sínu. 34 Síðan horfði hann upp til himins, andvarpaði og sagði: „Opnist þú.“ 35 Um leið fékk maðurinn fulla heyrn og talaði skýrt!
36 Jesús bannaði fólkinu að láta þetta fréttast, en því meir sem hann bannaði það, því meir var það borið út, 37 kraftaverkið hafði mikil áhrif á alla. Fólk sagði: „Allt sem hann gerir er gott. Hann getur meira að segja gefið heyrnarlausum heyrn og mállausum mál.“