4
Jesú freistað
Eftir þetta leiddi heilagur andi Jesú út í óbyggðina, til þess að hans yrði freistað af Satan. Þegar Jesús hafði verið þar matarlaus í fjörutíu sólarhringa var hungrið farið að sverfa að. Þá reyndi Satan að fá hann til að breyta steinum í brauð og sagði:
„Ef þú ert sonur Guðs, þá breyttu þessum steinum í brauð.“
„Nei!“ svaraði Jesús. „Biblían segir að fæðan sé manninum ekki hið eina nauðsynlega heldur það að fara eftir orði Guðs.“
Satan fór þá með hann til Jerúsalem, upp á þak musterisins, og sagði:
„Ef þú ert sonur Guðs þá kastaðu þér fram af þakbrúninni, því að Biblían segir: „Guð mun senda engla sína til að gæta þín, þeir munu vernda þig svo þú slasist ekki á steinunum fyrir neðan.“ “
„Já, en hún segir einnig að enginn skuli leggja heimskulegar þrautir fyrir Drottin, Guð sinn!“ svaraði Jesús byrstur.
Því næst fór Satan með Jesú upp á hátt fjall og sýndi honum þaðan þjóðir heimsins og alla dýrð þeirra. „Allt þetta mun ég gefa þér, ef þú krýpur fyrir mér og tilbiður mig.“
10 „Burt með þig Satan!“ skipaði Jesús. „Guðs orð segir: „Drottin Guð þinn átt þú að tilbiðja og hlýða honum einum.“ “
11 Þá fór Satan burt, en englar komu og þjónuðu Jesú.
Jesús byrjar að predika
12-13  Þegar Jesús frétti að Jóhannes hefði verið handtekinn, fór hann norður í Galíleu. Hann fluttist frá Nasaret og settist að í Kapernaum, sem er við Galíleuvatnið í héraði Sebúlóns og Naftalí. 14 Þá rættist þessi spádómur Jesaja:
15-16  „Í landi Sebúlons og landi Naftalí við vatnið – héraðinu handan Jórdan og í Efri-Galíleu þar sem margir útlendingar búa – var fólkið í myrkri, en dag einn braust ljósið fram og skein á meðal þess.“
17 Upp frá þessu tók Jesús að predika:
„Snúið ykkur frá syndinni og til Guðs, því að ríki himnanna er nálægt.“
Köllun fiskimanna
18 Dag einn var hann á gangi við Galíleuvatnið. Þá hitti hann tvo menn á báti við ströndina. Þetta voru Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés bróðir hans. Þeir voru fiskimenn og voru að kasta neti í vatnið.
19 Jesús kallaði til þeirra: „Komið og fylgið mér, og ég skal kenna ykkur að veiða menn!“ 20 Þá yfirgáfu þeir netin og fóru með honum.
21 Spölkorn þaðan sá hann tvo aðra menn við vatnið, Jakob og Jóhannes, sem einnig voru bræður. Þeir sátu þar í báti ásamt Sebedeusi föður sínum og bættu net. Jesús kallaði einnig á þá og 22 þeir stóðu samstundis upp frá vinnunni, skildu föður sinn eftir og fylgdu Jesú.
Jesús læknar marga
23 Jesús ferðaðist um alla Galíleu og talaði í samkomuhúsum Gyðinga (en þar fóru guðþjónustur fram). Hann predikaði gleðiboðskapinn um guðsríki og læknaði hvers konar sjúkdóma og meinsemdir. 24 Fregnir af kraftaverkum hans bárust langt út fyrir Galíleu. Sjúkt fólk kom jafnvel alla leið frá Sýrlandi til að fá lækningu hjá honum. Hann læknaði alla sjúka (sama hver sjúkdómurinn var), einnig geðveika og lamaða, og þá sem haldnir voru illum öndum. 25 Mikill mannfjöldi fylgdi honum hvert sem hann fór – fólk frá Galíleu, bæjunum tíu austanvert við Galíleuvatnið, Jerúsalem, Júdeu og jafnvel frá landsvæðinu handan Jórdanar.