5
Sæluboðin
Dag nokkurn þegar fólkið þyrptist að honum fór hann upp á fjallið ásamt lærisveinum sínum, settist þar niður og kenndi:
„Sælir eru auðmjúkir, því að þeirra er himnaríki.
Sælir eru sorgmæddir, því að þeir munu huggaðir verða.
Sælir eru hógværir, því að þeir munu eignast landið.
Sælir eru þeir sem þrá réttlætið, því að það mun falla þeim í skaut.
Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.
Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu sjá Guð.
Sælir eru þeir sem vinna að friði, því að þeir munu kallaðir verða synir Guðs.
10 Sælir eru þeir sem ofsóttir eru fyrir trú sína á mig, því að þeirra er himnaríki.
11 Gleðjist og fagnið þegar fólk talar illa um ykkur, ofsækir ykkur eða ber lognar sakir á ykkur vegna þess að þið fylgið mér, 12 því að mikil laun bíða ykkar á himnum!
Minnist þess að hinir fornu spámenn þoldu einnig ofsóknir.
Salt og ljós
13 Þið eruð salt jarðarinnar, þið eigið að bæta heiminn! Hvernig færi ef þið misstuð seltuna? Þið yrðuð einskis nýt eins og rusl sem fleygt er út og fótum troðið. 14 Þið eruð ljós heimsins. Allir sjá borg sem reist er á fjalli. 15-16  Felið því ekki ljósið ykkar heldur látið það skína til að allir sjái það! Leyfið öllum að sjá góðverk ykkar, svo að þeir þakki föður ykkar á himnum.
Kristur uppfyllir lögmálið
17 Misskiljið mig ekki. Ég kom ekki til að afnema lög Móse og viðvaranir spámannanna. Nei, ég kom til að uppfylla hvort tveggja og staðfesta það. 18 Ég segi ykkur satt: Hver einasta grein lögbókarinnar mun standa óhögguð uns tilgangi hennar hefur verið náð. 19 Þar af leiðir að sá sem brýtur hið minnsta boðorð og hvetur aðra til þess að gera hið sama verður minnstur í himnaríki. En sá sem kennir lög Guðs og fer eftir þeim mun verða mikill í himnaríki. 20 Ég vil benda ykkur á eitt: Ef góðverk ykkar verða ekki fremri góðverkum faríseanna og annarra leiðtoga þjóðarinnar, þá komist þið alls ekki inn í guðsríkið.
Morð á upptök í hjartanu
21 Þannig segir í lögum Móse: „Drepir þú mann, verður þú sjálfur að deyja.“ 22 En ég bæti við: Ef þú reiðist – jafnvel þótt það sé aðeins við bróður þinn á þínu eigin heimili – vofir dómurinn yfir þér! Ef þú kallar vin þinn fífl, átt þú á hættu að þér verði stefnt fyrir réttinn! Og bölvir þú honum áttu eld helvítis yfir höfði þér. 23 Ef þú stendur frammi fyrir altarinu í musterinu og ert að færa Guði fórn, og minnist þess þá allt í einu að vinur þinn hefur eitthvað á móti þér, 24 skaltu skilja fórn þína eftir hjá altarinu, fara og biðja hann fyrirgefningar og sættast við hann. Komdu síðan aftur og berðu fram fórnina. 25 Flýttu þér að sættast við óvin þinn áður en það er um seinan, því að annars mun hann draga þig fyrir rétt. Þá verður þér varpað í skuldafangelsi, 26 þar sem þú verður að dúsa uns þú hefur greitt þinn síðasta eyri.
Hórdómur í huganum
27 Boðorðið segir: „Þú skalt ekki drýgja hór.“ 28 En ég segi: Sá sem horfir á konu með girndarhug, hefur þegar drýgt hór með henni í huga sínum. 29 Ef það sem þú sérð með auga þínu verður til þess að þú fellur í synd, skaltu stinga augað úr þér og fleygja því. Betra er að hluti af þér eyðileggist en að þér verði öllum kastað í víti. 30 Ef hönd þín – jafnvel sú hægri – kemur þér til að syndga, þá er betra að höggva hana af og fleygja henni en að lenda í helvíti.
Hjónabandið er heilagt og bindandi
31 Í lögum Móse segir svo: „Sá sem vill skilja við konu sína verður að fá henni skilnaðarbréf.“ 32 En ég segi: Skilji maður við konu sína af annarri ástæðu en þeirri að hún hafi verið honum ótrú, veldur hann því að hún drýgir hór, og sá sem síðar kvænist henni drýgir einnig hór.
Sverjið ekki
33 Þið þekkið líka þessa gömlu reglu: „Þú skalt ekki sverja rangan eið, og haltu þau heit sem þú hefur gefið Guði.“ 34 Ég segi: Sverjið ekki, hvorki við himininn, því að hann er hásæti Guðs, 35 né jörðina, því hún er fótskör hans. Sverjið ekki við Jerúsalem, því hún er borg hins mikla konungs. 36 Þú mátt ekki heldur sverja við höfuð þitt, því þú getur ekki einu sinni breytt háralit þínum, hvað þá meira. 37 Látið nægja að segja: Já, ég vil… eða: Nei, ég vil ekki! Það á að vera hægt að treysta því sem þú segir. Þurfir þú að staðfesta orð þín með eiði er ekki allt með felldu.
Gakktu auka mílu
38 Í lögum Móse stendur: „Stingi maður auga úr öðrum manni, skal hann sjálfur gjalda fyrir það með eigin auga. Brjóti einhver tönn úr þér, skaltu brjóta tönn úr honum í staðinn.“ 39 Ég segi hins vegar: Launið ekki ofbeldi með ofbeldi! Slái einhver þig á aðra kinnina, snúðu þá einnig hinni að honum. 40 Höfði einhver mál gegn þér þannig að þú tapar skyrtunni þinni, skaltu líka láta yfirhöfn þína af hendi. 41 Ef hermenn skipa þér að bera varning sinn eina mílu, þá skaltu bera hann tvær. 42 Gefðu þeim sem biðja þig, og snúðu ekki bakinu við þeim sem vilja fá lán hjá þér.
Elskið óvini ykkar
43 Sagt hefur verið: „Elskaðu vini þína og hataðu óvini þína.“ 44 En ég segi: Elskið óvini ykkar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja ykkur. 45 Ef þið gerið það, komið þið fram eins og hæfir sonum hins himneska föður. Hann lætur sólina skína jafnt á vonda sem góða. Hann lætur einnig rigna jafnt hjá réttlátum sem ranglátum. 46 Hvaða góðverk er það að elska þá eina sem elska ykkur? Jafnvel skattheimtumennirnir gera það. 47 Eruð þið nokkuð frábrugðin heiðingjunum, ef þið eruð einungis vinir vina ykkar? Nei! 48 Verið því fullkomin eins og ykkar himneski faðir er fullkominn.